Fótbolti

Kolbeinn með sigurmark Lommel

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kolbeinn Þórðarson í búningi Breiðabliks þar sem hann var í sumar
Kolbeinn Þórðarson í búningi Breiðabliks þar sem hann var í sumar mynd/blikar.is

Kolbeinn Þórðarson var hetja Lommel gegn Beerschot í belgísku B-deildinni í kvöld.

Kolbeinn var í byrjunarliði Lommel og kom hann þeim yfir á 19. mínútu leiksins.

Það reyndist eina markið sem skorað var og því sigurmarkið. Sigurinn kom Lommel úr fallsæti, með 21 stig eftir 20 umferðir.

Markið var það fyrsta sem Kolbeinn gerir fyrir sitt nýja félag en hann gekk í raðir Lommel í september.

Ari Freyr Skúlason var ekki í leikmannahópi Oostende í efstu deild í Belgíu vegna meiðsla. Oostende tapaði 1-0 fyrir Mechelen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×