Fótbolti

Flamengo í úrslitin

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Flamengo er komið í úrslitin
Flamengo er komið í úrslitin vísir/getty

Flamengo mætir annað hvort Monterrey eða Liverpool í úrslitaleik HM félagsliða eftir að hafa unnið Al-Hilal í undanúrslitum í kvöld.

Al-Hilal komst yfir í fyrri hálfleik með marki Al Dawsari en í seinni hálfleik tók Flamengo völdin.

Giorgian de Arrascaeta jafnaði metin fyrir Flamengo þegar fjórar mínútur voru liðnar í seinni hálfleik.

Bruno Henrique og sjálfsmark frá Ali Albulayhi tryggði Flamengo 3-1 sigur í leiknum.

Flamengo er ríkjandi Suður-Ameríkumeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×