Fótbolti

„Eina sem þú þarft er Alisson“

Klopp og Alisson féllust í faðma í leikslok
Klopp og Alisson féllust í faðma í leikslok vísir/getty

Jurgen Klopp hrósaði markverði sínum, Alisson Becker, eftir leik Liverpool og Monterrey í undanúrslitum HM félagsliða í Katar í kvöld.

„Það eina sem þú þarft er Alisson Becker,“ sagði Klopp eftir leikinn. Liverpool vann dramatískan 2-1 sigur þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma.

„Hann var til staðar á augnablikunum sem skiptu máli.“

Liverpool mætir nú Flamengo í úrslitum keppninnar, sá leikur fer fram á laugardag.

„Þetta var virkilega erfiður leikur, en góður og andrúmsloftið á vellinum var frábært.“

„Við höfum fengið til okkar nokkra krakka og sjáum til hvað við gerum með byrjunarliðið. Við viljum spila úrslitaleikinn og sjá hvað við getum gert.“

Virgil van Dijk var ekki með í leiknum í kvöld vegna veikinda, Klopp sagðist ekkert vita um stöðuna á honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×