Sautján sögð særð eftir eldflaugaskot Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 12. nóvember 2019 18:45 Liðsmenn Islamic Jihad á Gasasvæðinu. Vísir/AP
Ísraelski herinn felldi einn leiðtoga skæruliðasamtakanna Islamic Jihad með loftárás á Gasasvæðið í nótt. Eldflaugum var skotið til baka. Baha Abu al-Ata var einn leiðtoga Islamic Jihad, eða PIJ, en ísraelski herinn sagði samtökin vera að undirbúa eldflaugaskot. Ísraelar eru einnig sagðir hafa gert loftárás gegn öðrum leiðtoga PIJ í Damaskus, sýrlensku höfuðborginni. „Hann var að leggja á ráðin um fleiri árásir á næstu dögum. Maðurinn var tifandi tímasprengja,“ sagði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Hann sagði ríkið ekki hafa áhuga á stigmögnun átaka en myndi þó grípa til varna. PIJ-liðar söfnuðust saman við jarðarför Abu al-Ata og lofuðu hefndum. „Við fullvissum okkar fólk, okkar bardagakappa, um að við eigum ekki annara kosta völ en að fara í átök. Sama hvað þeir segja þá verður ekki komið í veg fyrir að PIJ svari morðinu á Baha Abu-al-Ata og Muaz al-Ajouri,“ sagði leiðtoginn Khalid al-Batish. Örfáum mínútum eftir að andlát Abu al-Ata var staðfest var 150 eldflaugum skotið frá Gasasvæðinu. Heyra mátti sírenur í Tel Aviv og hvítur reykur var á himni. Talið er að ein eldflaugana hafi hæft verksmiðju í ísraelska bænum Sderot. Að minnsta kosti sautján særðust lítillega í eldflaugaárásunum, samkvæmt sjúkrahúsi borgarinnar Ashkelon.
Ísrael Palestína Mest lesið Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Býður þingmönnum að „fá hrollkaldan veruleikan í andlitið“ Innlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Innlent Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Innlent Fleiri fréttir Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Sjá meira