Winks og Mount skoruðu sín fyrstu landsliðsmörk í stórsigri á Kósóvó Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. nóvember 2019 18:45 Winks fagnar sínu fyrsta marki fyrir enska landsliðið. vísir/getty England vann 0-4 sigur á Kósóvó í Pristina í lokaleik sínum í undankeppni EM 2020 í kvöld. Englendingar unnu A-riðilinn, fengu 21 stig af 24 mögulegum og voru með markatöluna 37-6. Tékkar fylgja Englendingum upp úr riðlinum. Þeir töpuðu fyrir Búlgörum, 1-0, í kvöld. Vasil Bozhikov skoraði eina mark leiksins. Harry Winks kom Englandi á bragðið á 32. mínútu í Pristina með sínu fyrsta landsliðsmarki. Nafni hans úr Tottenham, Harry Kane, bætti öðru marki við á 79. mínútu. Kane skoraði í öllum átta leikjum Englands í undankeppninni og er markahæsti leikmaður hennar með tólf mörk. Kane er fyrsti Englendingurinn sem skorar í öllum leikjum í undankeppni stórmóts.Harry Kane has become the st @England player to score in every game in a qualifying campaign Mar 22 Czech Republic Mar 25 Montenegro Sept 7 Bulgaria Sept 10 Kosovo Oct 11 Czech Republic Oct 14 Bulgaria Nov 14 Montenegro Nov 17 Kosovo pic.twitter.com/ahcvZ9F986 — Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) November 17, 2019 Marcus Rashford skoraði svo þriðja markið á 83. mínútu og í uppbótartíma skoraði Mason Mount fjórða mark Englands og sitt fyrsta landsliðsmark. Kósóvó endaði í 3. sæti riðilsins en fer í umspil um sæti á EM í mars á næsta ári. EM 2020 í fótbolta
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti