Staðfestir fjármálaráðherrann fyrrverandi sem næsta forsætisráðherra Atli Ísleifsson skrifar 14. nóvember 2019 13:57 Igor Dodon er forseti Moldóvu. EPA
Þjóðþing Moldóvu staðfesti í dag fyrrverandi fjármálaráðherrann Ion Chicu sem næsta forsætisráðherra landsins. Ný ríkisstjórn samanstendur að mestu af skoðanabræðrum forsetans Igor Dodon sem er hallur undir rússnesk stjórnvöld. Fréttirnar berast tveimur dögum eftir að þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur forsætisráðherranum Maia Sandu, sem hefur talað fyrir auknu samstarfi Moldóvu við Vesturlönd. Stjórn Sandu tók við völdum fyrir um fimm mánuðum og hét þá því að taka hart á spillingu í landinu.Ion Chicu er nýr forsætisráðherra Moldóvu.EPAÍ frétt Reuters er haft eftir Chicu, sem gegndi embætti fjármálaráðherra í stjórn forvera Sandu, Pavel Filip, að Moldóva myndi standa við skuldbindingar sínar gagnvart alþjóðlegum stofnunum, þar með talið Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabankann.Sjá einnig:Bráðabirgðastjórn Moldóvu fer frá og pattstöðunni lokið Sandu, sem vill að Moldóva gerist aðili að Evrópusamsambandinu, myndaði fyrr á árinu ríkisstjórn með Sósíalistaflokknum, sem forsetinn Dodon leiddi á árunum áður. Stjórnarsamstarfinu lauk hins vegar eftir deilur um frumvarp sem sneri að því hvernig skyldi velja nýjan ríkissaksóknara. Moldóva er eitt fátækasta ríki Evrópu, staðsett milli Rúmeníu og Úkraínu og eru íbúar um 3,5 milljónir talsins.
Moldóva Tengdar fréttir Bráðabirgðastjórn Moldóvu fer frá og pattstöðunni lokið Pattstaða hefur verið í moldóvskum stjórnmálum síðustu misserin eftir þingkosningarnar í febrúar. 14. júní 2019 23:08 Mest lesið Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Innlent Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Innlent Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins Innlent Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Innlent Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni Innlent Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ Innlent Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Erlent Fleiri fréttir Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sjá meira
Bráðabirgðastjórn Moldóvu fer frá og pattstöðunni lokið Pattstaða hefur verið í moldóvskum stjórnmálum síðustu misserin eftir þingkosningarnar í febrúar. 14. júní 2019 23:08