Fundu lík bresku konunnar við strendur Kambódíu Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. október 2019 12:43 Amelia Bambridge var 21 árs. Vísir/AP
Lík breskrar konu, sem hvarf á bakpokaferðalagi um Kambódíu, fannst í sjó úti fyrir ströndum eyjunnar Koh Rong. Lögregla greindi frá þessu í dag. Ekkert hafði spurst til konunnar, hinnar 21 árs Ameliu Bambridge, síðan í síðustu viku þegar hún mætti í samkvæmi á strönd áðurnefndrar eyju. Lík hennar fannst um fimmtíu kílómetra úti fyrir ströndinni og verður flutt til borgarinnar Sihanoukville á meginlandi Kambódíu í dag. Fjölskylda Bambridge, sem dvalið hefur á Koh Rong síðustu daga til að aðstoða við leitina, er lögð af stað til borgarinnar. Tilkynnt var um hvarf Bambridge þann 23. október, morguninn eftir samkvæmið, þegar hún sneri ekki aftur á gistiheimilið þar sem hún dvaldi. Bakpoki hennar, veski sími og greiðslukort fundust á strönd eyjunnar sama morgun. Ekkert hefur verið gefið upp um dánarorsök hennar. Sex menn, sem allir starfa í ferðaþjónustuiðnaði á ströndinni, voru handteknir og yfirheyrðir í tengslum við málið í vikunni. Mennirnir voru tilkynntir til lögreglu vegna óviðeigandi hegðunar í garð útlendra kvenna á eyjunni en var öllum sleppt úr haldi á þriðjudag.
Bretland Kambódía Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Fleiri fréttir Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Sjá meira