Bandarískir hermenn ekki með leyfi til að vera í Írak Samúel Karl Ólason skrifar 22. október 2019 14:17 Nú eru um fimm þúsund bandarískir hermenn í Írak. Þeir voru kallaðir heim árið 2011 og sneru aftur árið 2014, þegar vígamenn ISIS lögðu stóran hluta Írak og sömuleiðis Sýrlands undir sig. Vísir/AP
Ríkisstjórn Írak segir að bandarískir hermenn sem hafi verið kallaðir frá Sýrlandi hafi ekki leyfi til að halda til í Írak. Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði nýverið að hermennirnir myndu mögulega vera í Írak og halda áfram að berjast gegn Íslamska ríkinu þar. Esper sagði svo í morgun að hann ætti eftir að ræða það til leiðtoga hvernig sú barátta ætti að fara fram. Hann tók þó fram að hermönnunum væri ekki ætlað að vera í Írak til lengdar. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tók þá ákvörðun að kalla hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi og gerði þar með Tyrkjum kleift að herja á sýrlenska Kúrda, bandamenn Bandaríkjanna gegn Íslamska ríkinu. Forsetinn hefur haldið því fram að mennirnir myndu fara til Bandaríkjanna. Nú stendur til að skilja einhverja hermenn eftir í Sýrlandi og er hinum, um þúsund, ætlað að fara til Írak. Nú eru um fimm þúsund bandarískir hermenn í Írak. Þeir voru kallaðir heim árið 2011 og sneru aftur árið 2014, þegar vígamenn ISIS lögðu stóran hluta Írak og sömuleiðis Sýrlands undir sig. Eftir að ríkisstjórn Írak lýsti yfir sigri gegn ISIS árið 2017 hafa áköll eftir brottför hermanna Bandaríkjanna orðið sífellt háværari. Í yfirlýsingu frá herafla Írak segir að her Bandaríkjanna hafi fengið leyfi til að flytja um þúsund hermenn frá Sýrlandi yfir landamærin í norðurhluta Írak svo hægt væri að flytja þá frá landinu. Þeir hefðu ekki fengið leyfi til að halda til í Írak.Esper mun ræða við forsvarsmenn hers Írak á morgun.
Bandaríkin Írak Sýrland Mest lesið Íbúí í Holtunum smitaðist af hermannaveiki Innlent Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Erlent Friðhelgin stórauki vald forsetans Erlent Íslandsbankahúsið rústir einar Innlent Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Innlent Umræðan verði að vera málefnaleg Innlent „Pabbi er að senda þér skilaboð og mamma vill fá að sjá hvað stendur“ Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Komu fótbrotnum göngumanni til bjargar Innlent Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Fleiri fréttir Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Sjá meira