Skoðun

Ritstjórnarvald ríkisins

Jóhannes Stefánsson skrifar
Útspil Íslandsbanka um að úthýsa fjölmiðlum sem fullnægja ekki skilyrðum bankans um kynjajafnrétti vekur athygli. Ákvörðunin byggir á sjónarmiðum um samfélagsábyrgð. Tími orða sé liðinn og komið að aðgerðum. Lítum að svo stöddu framhjá sjónarmiðum um kynjatvíhyggju. Almennt hljóta einkafyrirtæki að mega velja af hverjum þau kaupa þjónustu. Það vakna þó spurningar þegar fyrirtæki í ríkiseigu eða stofnanir ríkisins eru annars vegar.

Úr því að Íslandsbanki er búinn að taka af skarið gætu önnur ríkisfyrirtæki og stofnanir fylgt í kjölfarið. Samfélagsábyrgð er enda vaxandi partur í starfsemi þeirra og varla til sú stofnun sem hefur ekki sett sér samfélagsleg markmið. Taka mætti dæmi um embætti landlæknis. Ekki yrði keypt af fjölmiðli sem birtir efni sem gæti talist andstætt lýðheilsu, t.d. með auglýsingum sem hvettu til óholls mataræðis eða viðtölum þar sem ekki er fjallað um neyslu áfengis, tóbaks eða orkudrykkja með nægilega gagnrýnum hætti.

Fleiri stofnanir myndu auðvitað vilja sýna samfélagsábyrgð í verki. Umhverfisstofnun kaupir ekki af fjölmiðli sem birtir greinar þar sem efast er um gagnsemi eða nauðsyn aðgerða gegn loftslagsvá, né af miðlum sem ekki eru kolefnishlutlausir. Byggðastofnun ekki af miðlum sem sýna ekki nægilegt jafnvægi í umfjöllun um mál sem varða hagsmuni landsbyggðarinnar. Öll ábyrg ríkisfyrirtæki og stofnanir fylgjast með fjölmiðlum og halda úti lista þeirra sem sýna ekki samfélagsábyrgð í verki. Það væri jafnvel tilvalið að fjölmiðlanefnd fengi það hlutverk að fylgjast með og flagga þeim fjölmiðlum sem brjóta gegn skilmálum hverrar og einnar stofnunar.

Þegar allir hafa sýnt samfélagsábyrgð sína í verki er hlutverk fréttamanna fyrst og fremst að birta fréttatilkynningar frá upplýsingafulltrúum ríkisfyrirtækja og -stofnana. Jafnframt að veita forstöðumönnum þeirra viðtöl um samfélagsleg markmið sín. Hlutverk ritstjórna væri þá aðallega að meta og leiðbeina um hvað teldist birtingarhæft í auglýsingum einkafyrirtækja, skera úr um hvað skuli gert ef fréttatilkynning eins stangast á við samfélagsmarkmið annars og passa upp á að viðmælendur flytji ekki mál sem væri andstætt samfélagsábyrgð. Með þessu má tryggja að öllum samfélagslegum markmiðum verði náð miklu hraðar og betur en ella.

Höfundur er fyrrverandi blaðamaður.


Tengdar fréttir

Segja eitt en gera annað

Þegar loforð um betri og bættan heim heyrast úr öllum hornum þar sem flestir eru að reyna að breyta hegðun sinni þá er ekki annað hægt en að fyllast örlítilli von um að hlutirnir fari kannski ekki á versta veg þrátt fyrir öra hlýnun jarðar.

Út­spil Ís­lands­banka kemur fjár­mála­ráð­herra spánskt fyrir sjónir

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra veltir fyrir sér hvar Íslandsbanki ætli að draga mörkin þegar komi að jafnréttismálum. Bankinn, sem er í eigu ríkisins, ætlar að beina viðskiptum sínum frá karlægum fyrirtækjum og hætta að kaupa auglýsingar hjá fjölmiðlum "sem bjóða upp á afgerandi kynjahalla.“




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×