Innlent

Maður grunaður um sleitulausa brotahrinu í gæsluvarðhald

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Héraðsdómur Suðurlands er á Selfossi.
Héraðsdómur Suðurlands er á Selfossi. Vísir/Vilhelm
Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands fyrir manni sem grunaður er um fjölmörg brot, þar með talið meintar hótanir, frelsissviptingu og vopnalagabrot. Lögreglan segir að brotahrina mannsins hafi verið sleitulaus á undanförnum vikum.

Lögreglan á Suðurlandi handtók manninn fyrr í mánuðinum í tengslum við rannsókn lögreglu er varði meintar hótanir, frelsissviptingu og vopnalagabrot þegar hin meintu brot voru nýafstaðin.

Lögreglan kom á vettvang meintra brota og hitt þar fyrir brotaþola, sem hafi verið í miklu uppnámi og mjög óttasleginn.

Í úrskurðinum segir að í skráningarkerfi lögreglu komi fram að lögreglan hafi ítrekað haft afskipti af manninum undanfarnar vikur. Segja megi „að brotahrina hans hafi verið sleitulaus“ frá ákveðnum tímapunkti sem er ekki tilgreindur í úrskurðinum.

Síðan þá hafi minnst tíu mál á hendur manninum komið á borð lögreglu. Þá séu ótaldar tilkynningar til lögreglu á sama tímabili er varði eignaspjöll, brennu og hótanir. Þá hafi hann einnig verið kærður í sex skipti fyrir of hraðan akstur og í eitt skipti fyrir ölvunarakstur.

Í úrskurðinum segir einnig að við uppflettingu í lögreglukerfi um manninn komi fram að hannsé hættulegur einstaklingur og gæta verði varúðar í samskiptum við hann, enda hafi hann ráðist að lögreglumönnum.

Mál gegn manninum eru til rannsóknar hjá þremur lögregluembættum auk þess að fyrir Landsrétti voru lögð fram gögn frá Evrópulögreglunni um sakaferil mannisns. Þar kemur meðal annars fram að hann hefur hlotið refsidóma vegna vopnalaga-, líkamsárása- og ránsbrota.

Í úrskurðinum segir að maðurinn sé undir rökstuddum grun um að hafa gerst ítrekað sekur um háttsemi sem varði allt að sex ára fangelsi. Það hafi verið mat lögreglustjóra að maðurinn muni halda áfram brotastarfsemi á meðan málum hans sé ekki lokið. Því sé gæsluvarðhald nauðsynlegt.

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald til 15. nóvembers og staðfesti Landsréttur þann úrskurð í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×