Lífið

Þúsund konur fjölmenna á bíókvöld Bleiku slaufunnar

Tinni Sveinsson skrifar
Fjölmargar þekktar íslenskar konur taka þátt í átaksverkefninu Bleiku slaufunni í ár.
Fjölmargar þekktar íslenskar konur taka þátt í átaksverkefninu Bleiku slaufunni í ár.
Bleika slaufan, árlegt átaksverkefni Krabbameins­félagsins, hefst í dag. Í tilefni dagsins er búist við þúsund konum á bíókvöld í Háskólabíói klukkan 20 þar sem kvikmyndin Downton Abbey verður sýnd.

Þema Bleiku slaufunnar í ár er Þú ert ekki ein. Áhersla er lögð á það að stuðningur skiptir máli og vegna mikillar þátttöku vinkvennahópa í fyrra hefur Vinkonuklúbbur Krabbameinsfélagsins verið stofnaður. 

Áður en sýningin í kvöld hefst verður bein útsending frá Háskólabíói. Búið er að skreyta bíóið í bleikum lit og breskri stemmningu í anda Downton Abbey. Leikkonurnar Dóra Jóhannsdóttir og Elva Ósk Ólafsdóttir verða kynnar á sýningunni og ætla að taka viðtöl og sýna nokkur myndbönd fyrir sýninguna.

Hægt er að sjá útsendinguna hér fyrir neðan en hún hefst um klukkan 20.

Átakið Bleika slaufan er tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Söfnunarfé Bleiku slaufunnar stendur undir stórum hluta af þeirri fjölbreyttu starfsemi sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir án endurgjalds, svo sem ráðgjöf, stuðningur, námskeið, fræðsla, forvarnastarfsemi, hagsmunagæsla og rannsóknir.





Bleika slaufan 2019.
Bleika slaufan 2019 var afhjúpuð í dag en hún er hönnuð af Guðbjörgu Kristínu Ingvarsdóttur, skartgripa­hönnuði í AURUM Bankastræti. Í fyrsta sinn er hún hálsmen en blómin á henni vísa til vellíðunar og jákvæðni og hringurinn táknar kvenlega orku og veitir vernd.

Föstudagurinn 11. október er bleiki dagurinn en þá hefur skapast hefð fyrir því að fólk og fyrirtæki um land allt skreyti sig með bleikum lit. Hægt er að sjá nánari upplýsingar og kaupa slaufu á heimasíðunni bleikaslaufan.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.