Innlent

Alelda sumarbústaður í Brekkuskógi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bústaðurinn í Brekkuskógi sem um ræðir fyrr í dag.
Bústaðurinn í Brekkuskógi sem um ræðir fyrr í dag. Brunavarnir Árnessýslu
Slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Árnessýslu vinna nú að því að ráða niðurlögum elds sem kom upp í sumarhúsi BHM í Brekkuskógi á öðrum tímanum í dag. Húsið var mannlaust en alelda þegar að var komið og hætta talin á að eldurinn gæti breitt úr sér í gróður og kjarrlendi nærri húsinu. Eldsupptök liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Haukur Grönli varaslökkviliðsstjóri segir í samtali við Vísi að tilkynning hafi borist frá Neyðarlínunni um klukkan 13:10. Fulltrúar slökkviliðsins á Flúðum og Laugavatni hafi verið sendir á staðinn. Til stóð að senda dælubíl frá Selfossi sem var komin af stað en hann var afturkallaður.

Brekkuskógur er þéttskipaður sumarbústöðum, aldrei langt í næsta hús en auk þess þarf að huga vel að gróðri að sögn Hauks. Þar hjálpi að vísu til hversu mikil rigning hefur verið á svæðinu undanfarið. Mest áhersla sé lögð á að slökkva gróðurelda og svo verður unnið í húsinu sem hafi verið alelda. Málið fer í framhaldinu á borð lögreglu til rannsóknar.

Í tilkynningu frá BHM sem barst fréttastofu skömmu fyrir klukkan 15 segir um sé að ræða einn af bústöðum stéttarfélagsins. Sé ljóst að tjón Orlofssjóðs félagsins sé verulegt og verði unnið að því að meta það á næstu dögum.

Um er að ræða hús nr. 28 og er sjóðsfélögum sem kunna að hafa bókað húsið til dvalar á næstunni vinsamlegast bent á að hafa samband við þjónustuver BHM.

Fréttin hefur verið uppfærð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×