Kvika og fjárfestar vinna að stofnun allt að 14 milljarða sjávarútvegssjóðs Hörður Ægisson skrifar 18. september 2019 08:15 Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi.
Kvika banki, í samstarfi við bresku viðskiptafélagana Mark Holyoake, sem var stærsti hluthafi Iceland Seafood og stjórnarmaður á árunum 2010 til 2019, og Lee Camfield, fyrrverandi framkvæmdastjóri rekstrar hjá Iceland Seafood, vinna nú að stofnun framtakssjóðs sem mun einkum fjárfesta í evrópskum fyrirtækjum í sjávarútvegi. Sjóðurinn hefur að undanförnu, samkvæmt heimildum Markaðarins, verið kynntur íslenskum fagfjárfestum – lífeyrissjóðum, verðbréfasjóðum og einkafjárfestum – og eru væntingar um að hægt verði að ljúka fyrstu umferð söfnunar áskriftarloforða frá fjárfestum á næstu vikum. Lagt er upp með að heildarstærð framtakssjóðsins, sem heitir Bluevest Capital, við stofnun verði um 40 milljónir evra, jafnvirði 5,5 milljarða króna, með möguleika á að stækka hann í allt að 100 milljónir evra innan tólf mánaða. Áætlanir gera ráð fyrir að Kvika banki komi að fjármögnun framtakssjóðsins sem minnihlutaeigandi en bankinn verður hins vegar ekki rekstraraðili hans. Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri dótturfélags Kviku í Bretlandi, sem leiðir verkefnið fyrir hönd bankans, mun taka sæti í fjárfestingarráði sjóðsins ásamt meðal annars Holyoake og Camfield en þeir hættu störfum sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri hjá Iceland Seafood í byrjun þessa árs.
Birtist í Fréttablaðinu Sjávarútvegur Mest lesið Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sjá meira