Bíó og sjónvarp

Heimildamyndin KAF frumsýnd í Bíó Paradís

Birgir Olgeirsson skrifar
Úr heimildamyndinni KAF.
Úr heimildamyndinni KAF.
Heimildarmyndin KAF verður frumsýnd 5. september en hún gefur innsýn í heim Snorra Magnússonar, þroskaþjálfara, sem hefur helgað lífi sínu kennsluaðferðum í ungbarnasundi.

Í heimildamyndinni er fylgst með hvítvoðungum stálpast og þroskast og því hvernig foreldrar kynnast börnum sínum í gegnum upplifun í vatni.

KAF fjallar einnig um fyrstu mánuðina í lífi barna, árin sem enginn man. Þessi aldur hefur ekki mikið verið kannaður en nýjustu rannsóknir sýna hins vegar fram á að ungabörn búa yfir hæfileika til að tjá sig og leiða samskiptin mun fyrr en áður var haldið.

Á Íslandi ríkir mikil sundmenning, þar sem ekki skortir heitt vatn, og geta börnin verið lengur í lauginni en erlendis. Hlutfall barna á Íslandi sem fara í ungbarnasund er því hærra en annars staðar í heiminum. Snorri hefur á undanförnum 28 árum, kennt þúsundum barna ungbarnasund og þannig seitlar hans vinna út í allt samfélagið.

„Myndin er tekin upp í Skálatúnslaug í Mosfellsbæ þar sem Snorri hefur byggt upp litríkan heim milli fjalls og fjöru sem skýlir foreldrum og börnum fyrir veðri og vindum allan ársins hring,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum myndarinnar.

Myndin er eftir Elínu Hansdóttur, Önnu Rún Tryggvadóttur og Hönnu Björk Valsdóttur. Bergsteinn Björgúlfsson sá um kvikmyndatöku, Björn Viktorsson er hljóðhönnuður, tónlistin var í höndum dönsku hljómsveitarinnar Efterklang og Andri Steinn Guðjónsson sá um klippingu.

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um höfunda og klippara myndarinnar auk þess sem stiklu myndarinnar má sjá að neðan.

Klippa: KAF - sýnishorn







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.