Innlent

Brugðust hratt við vegna potts sem gleymdist á eldavél

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. Vísir/Berghildur.
Slökkviliðsmenn og lögreglumenn brugðust hratt við vegna tilkynningar um reyk út um glugga á þriðju hæð fjölbýlishúss við Framnesveg í Reykjavík á öðrum tímanum í dag.

Fimm mínútum eftir að útkallið barst höfðu viðbragðsaðilar náð að tryggja öryggi á aðstæðum á vettvangi en húsráðandi, sem ekki var heima, hafði gleymt potti á hellu með fyrrgreindum afleiðingum.

Engum varð meint af að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og er búið að reykræsta íbúðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×