Lífið samstarf

Finnska merkið Pentik loksins á Íslandi

KITOS.IS kynnir
Finnska merkið Pentik er samkeppnisaðili Iittala í Finnlandi.
Finnska merkið Pentik er samkeppnisaðili Iittala í Finnlandi. KITOS.IS
KITOS.IS er glæný netverslun sem selur skandínavíska hönnun eins og hún gerist best. Vörurnar koma frá finnska merkinu Pentik og hafa ekki fengist hér á landi í þessu úrvali fyrr en nú. Þær Sædís Rán og María Ása standa á bak við KÍTOS en þær höfðu kynnst Pentik á ferðalögum fjölskyldumeðlima til Finnlands. Þær segja Pentik smellpassa inn á íslensk heimili. KÍTOS verður með á Haust Pop-Up markaði netverslana um helgina.

 

Þær Sædís Rán og María Ása standa á bak við KÍTOS.
„Við stofnuðum KITOS.IS í byrjun sumars og viðtökurnar hafa farið fram úr væntingum. Pentik á sér aðdáendahóp hér á landi og okkur langar að kynna það fyrir fleirum. Það þekkja allir Iittala en færri vita að Pentik er einn helsti samkeppnisaðili Iitala í Finnlandi,“ segja þær. 

Ólíkt Iittala sé Pentik hins vegar nýlega farið að færa sig út fyrir Finnlandsmarkað og KITOS.IS mun leggja sitt af mörkum til þess. 

Pentik framleiðir hágæða vörur fyrir heimilið, keramikvörur og textíl, glervörur og viðaráhöld og gefur út fimm árstíðabundnar línur á ári. Haustlínan er að smella inn og verður meðal þess sem þær Sædís og María kynna á Haust Pop-Up markaði netverslana um helgina. Allar vörur KITOS.IS verða á 20% afslætti alla helgina bæði í netverslun og á markaðinum.

Markaðurinn fer fram í Víkingsheimilinu í Fossvogi og hefst 31. ágúst og stendur til 1. september. Opið verður milli klukkan 11 og 17. 

Þessi kynning er unnin í samstarfi við KITOS.IS.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.