Lífið

Móðir A$AP Rocky segir Svía vilja refsa syni sínum öðrum til viðvörunar

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Renee Black, móðir rapparans A$AP Rocky, segist vera orðin ráðþrota. Hún hefði haldið að ákall forseta Bandaríkjanna nægði til þess að leysa Rocky úr haldi. Hún hefur aðeins einu sinni náð að tala við Rocky síðan hann var handtekinn en hún segir að hann hafi verið í góðu jafnvægi.
Renee Black, móðir rapparans A$AP Rocky, segist vera orðin ráðþrota. Hún hefði haldið að ákall forseta Bandaríkjanna nægði til þess að leysa Rocky úr haldi. Hún hefur aðeins einu sinni náð að tala við Rocky síðan hann var handtekinn en hún segir að hann hafi verið í góðu jafnvægi. Vísir/Getty
Móðir bandaríska rapparans A$AP Rocky er sannfærð um að sænsk yfirvöld séu óþarflega hörð við son sinn því þau vilji refsa honum öðrum til viðvörunar. Hana grunar að meðferð Svía á rapparanum sé vegna kynþáttafordóma.

Dómari í Svíþjóð samþykkti fyrir helgi beiðni saksóknara um að framlengja gæsluvarðhald yfir rapparanum um eina viku. Hann var handtekinn í Stokkhólmi í byrjun júlí grunaður um að hafa, ásamt tveimur öðrum, ráðist á mann þann 30. júní. Myndskeið náðist af árásinni. Rocky og meintir samverkamenn bera fyrir sig að umræddur maður hefði áreitt þá.

Rocky hefur nú þegar þurft að aflýsa tólf tónleikum vegna málsins.

Renee Black, móðir rapparans, segist vera orðin ráðþrota. Hún hefði haldið að ákall forseta Bandaríkjanna nægði til þess að leysa Rocky úr haldi. Hún hefur aðeins einu sinni náð að tala við Rocky síðan hann var handtekinn en hún segir að hann hafi verið í góðu jafnvægi.

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist fyrir helgi ætla að setja sig í samband við Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, og reyna að fá A$AP Rocky lausan úr haldi. Hann kvaðst hafa rætt málið við bandaríska rapparann Kanye West.

Sniðganga Svíþjóð

Black segist síður vilja fullyrða um kynþáttafordóma af hálfu sænskra yfirvalda en bætir við að það sé erfitt að hunsa ýmis merki sem bendi til þess.



Nokkrir rapparar hafa stigið fram og kallað eftir sniðgöngu á Svíþjóð að öllu leyti og segjast sjálfir ekki ætla að koma fram í Svíþjóð þar til Rocky verður laus allra mála.

Rapparinn Slim Jxmmi hefur kallað eftir samstöðu með Rocky og boðar þvingunaraðgerðir. Hann vill að tónlistarmenn hætti við að koma fram á tónleikum í Svíþjóð. Hann segist oft hafa komið fram í Svíþjóð en bætir við að hann muni ekki sækja landið heim fyrr en yfirvöld bæta Rocky skaðann.


Tengdar fréttir

Trump bauðst til að ábyrgjast A$AP Rocky persónulega

Fjölmiðlafulltrúi sænska forsætisráðherrans greindi frá því að Löfven hafi í samtali sínu við Trump lagt áherslu á sjálfstæði sænska dómskerfisins og að stjórnvöld geti ekki reynt að hafa áhrif á framgöngu málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.