Þóttist ætla að aðstoða konu á skemmtistað en nauðgaði henni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. júlí 2019 15:30 Brotið átti sér stað í desember 2018. Hálfu ári síðar er fallinn dómur í málinu.
Mahdi Soussi, starfsmaður á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að brjóta gróflega á konu á salerni staðarins seint um nótt í desember 2018. Þarf hann að greiða konunni tvær milljónir króna í bætur. Konan lýsir því hvernig Soussi hafi læst sig inni á salernisbásnum með henni og áður en hún vissi af „var allt farið niður um mig og hann kominn inn í mig“. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 27. júní. Var hann sakfelldur fyrir að hafa komið fram vilja sínum með því að þvinga konuna til samræðis og annarra kynferðismaka með grófum hætti. Þá nýtti hann sér ölvunarástand konunnar sem gerði henni ókleift að sporna við verknaðinum.Sagði konuna hafa haft frumkvæði Soussi neitaði sök og sagði samræði við konuna hafa verið með hennar vilja. Auk þess hefði hún haft frumkvæði að kynmökunum. Framburður hans var þó ekki stöðugur. Í fyrstu sagðist hann hafa verið að hjálpa konunni sem hefði kastað upp. Síðar að hún hefði farið að kyssa hann og svo haft frumkvæði að kynmökum eftir að hann hefði sótt pappírsrúllu til að fylla á pappírsrúllukassa á salerninu. Dómurinn mat skýringar Soussi ótrúverðugar. Þær fengju ekki stoð í gögnum málsins, ummerkjum á vettvangi eða framburði vitna. Á móti væri það til merkis um huglæga afstöðu Soussi að hann veitti konunni sérstaka athygli um kvöldið og gaf sér að hún hefði sérstakan áhuga á honum. Þá hefði hann tekið eftir að hún væri ölvuð. Það hafi verið ástæða þess að hann fór að skipta sér af konunni samkvæmt því sem hann sagði í skýrslu hjá lögreglu. Soussi neitaði að tjá sig um málið fyrir dómi.Kom til bjargar en braut svo sjálfur Konan lýsti því fyrir dómi hvernig Soussi hefði haft samræði við hana gegn hennar vilja. Hún hafi þurft að fara á salernið og farið þangað ein. Maður hafi komið sem vildi leiða hana inn á salerni karla. Starfsmaður á skemmtistaðnum hafi gripið inn í og beint henni inn á salerni kvenna. Þar hafi hún setið ein með hurðina opna þegar sami starfsmaður, fyrrnefndur Soussi, kom aftur, ýtti henni inn á básinn og læst. Hann hafi svo tekið í hana, snúði harkalega við og í framhaldinu rifið niður um hana og þröngvað sér inn í hana. Í framhaldinu var bankað á hurðina og spurt hvað væri að gerast. Soussi hafi rifið upp um hana buxurnar og látið sem hún hefði þurft að æla. Dyravörður á staðnum hafi spurt hana hvort það væri rétt og hún neitað. Þá hafi hún orðið alveg máttlaus. Dómurinn mat framburð konunnar staðfastan, einkar trúverðugan og í öllum meginatriðum stöðugan frá því hún tjáði sig fyrst á vettvangi. Kom þá strax skýrt fram að Soussi hefði brotið kynferðislega gegn henni, eins og vitni báru um. Þá gaf hún nákvæma lýsingu á atvikum á neyðarmóttöku og í skýrslutöku hjá lögreglu.Vitni studdu við framburð konunnar Í málinu kom ekkert fram sem studdi við framburð ákærða Soussi hjá lögreglu um að konan hefði verið samþykk kynmökum við hann. Á hinn bóginn fékk framburður konunnar styrka stoð í gögnum málsins. Vitni lýstu á greinargóðan hátt upplifun sinni af atvikum og því sem fyrir augu bar þegar salernisbásinn var opnaður. Þá sést á upptöku úr búkmyndavél lögreglumanns að ástand konunnar var slíkt strax í kjölfar meints brots að ljóst var að hún hefði orðið fyrir verulegu áfalli. Kom það heim og saman við greinargóða lýsingu konunnar á einkennum áfallsins á meðan brotið var á henni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Moussi var starfsmaður á skemmtistað þar sem konan taldi sig óhulta. Nýtti hann aðstöðu sína til illverka og var ásetningur hans einbeittur. Þá lá ljóst fyrir í gögnum málsins að háttsemin hafði valdið konunni mikilli vanlíðan sem hún glími enn við. Þóttu tvær milljónir króna hæfileg upphæð í bótagreiðslur frá Moussi til konunnar. Hann þarf auk þess að greiða sakarkostnað upp á tæplega þrjá milljónir króna. Dóminn má lesa í heild hér.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Reykjavík Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Innlent „Stjórnmálamenn í Lazy Boy bíði þess að skattgreiðendur sendi þeim peninga“ Innlent Ofbýður hvað Reykjavík er ljót Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Innlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Áslaug Arna og Guðrún tókust á í Pallborðinu Innlent Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn haldi skólakerfinu í gíslingu Innlent Fleiri fréttir Drónaframleiðsla, sprengjuleit og innviðauppbygging meðal þess sem Ísland styrkir Slökkviliðsmenn felldu samninginn Kristrún í Kænugarði: „Mjög tilfinningaþrungið ástand hérna“ Ofbýður hvað Reykjavík er ljót „Ekki sitja í störukeppni á meðan molnar undan unga fólkinu“ Myndband af ránstilrauninni: Ýtti ræningja með byssu burt og ýtti á neyðarhnappinn Þriggja ára stríð, myndband af ráni og ljót borg Husky réðst á hreindýr, sem þurfti að aflífa Guðrún nýtur meiri stuðnings hjá almenningi Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn haldi skólakerfinu í gíslingu „Stjórnmálamenn í Lazy Boy bíði þess að skattgreiðendur sendi þeim peninga“ Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Kristrún í Kænugarði og átök innan sveitarfélaganna Fimm hundruð tré felld og ákvörðunar beðið Jón undir feldi eins og Diljá Hafa bæði í hyggju að leiða flokkana sína í næstu kosningum Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Áslaug Arna og Guðrún tókust á í Pallborðinu Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Ökumaður með hníf og kylfu en farþegi með heimatilbúnar sprengjur Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Svefnlyfjaneysla barna og heimildarmynd um úkraínska flóttamenn Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara 20 til 30 ný störf verða til í Árborg með tilkomu nýs öryggisfangelsis Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Sjá meira