Erlent

Ódæðismaður með hljóðdeyfi martröðin sem byssuandstæðingar höfðu varað við

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Starfsfólkið sem komst lífs af hefur lýst fyrstu augnablikum árásarinnar sem algjörri ringulreið. Það hafi í fyrstu ekki áttað sig almennilega á því sem væri í gangi og hvers vegna skelfing hafði skyndilega gripið um sig í þjónustumiðstöðunni.
Starfsfólkið sem komst lífs af hefur lýst fyrstu augnablikum árásarinnar sem algjörri ringulreið. Það hafi í fyrstu ekki áttað sig almennilega á því sem væri í gangi og hvers vegna skelfing hafði skyndilega gripið um sig í þjónustumiðstöðunni. Vísir/ap
Ódæðismaðurinn sem myrti tólf manns í þjónustumiðstöð í Virginia Beach á föstudag notaði 45-kalibera hálfsjálfvirka skammbyssu með hljóðdeyfi en hann hefur þá virkni að hvellurinn í skotvopninu verður ekki eins hávær og hljóðið afskræmist.

Starfsfólkið sem komst lífs af hefur lýst fyrstu augnablikum árásarinnar sem algjörri ringulreið. Það hafi í fyrstu ekki áttað sig almennilega á því sem væri í gangi og hvers vegna skelfing hefði skyndilega gripið um sig í þjónustumiðstöðunni.

Einn starfsmaðurinn segist ekki hafa botnað neitt í neinu og í fyrstu talið að ástæðan fyrir því að starfsfólkið þyrptist út væri til að aðstoða slasað fólk sem hefði lent í alvarlegu bílslysi sem hann gerði sér í hugarlund að hefði orðið fyrir utan bygginguna.

Aðstæðurnar sem sköpuðust á fjórða tímanum á föstudag er sú martröð sem fylgjendur strangari skotvopnalöggjafar hafa varað við um langt skeið og segja hljóðdeyfirinn bæta gráu ofan á svart þegar ódæðismenn láta til skarar skríða.

Vísir greindi frá því í gær að alls hafa 5.822 manneskjur látið lífið af völdum skotvopna í Bandaríkjunum þar sem af er ári.

Sjá nánar: Hátt í sex þúsund látið lífið af völdum skotvopna í Bandaríkjunum í ár

Byssuvinir vilja vernda heyrnina

Bandamenn byssunnar og þeir sem vilja hafa skotvopnalöggjöfina í óbreyttri mynd gera lítið úr áhyggjum fólks af hljóðdeyfum í umferð og færa rök fyrir því að líklega hefði hljóðdeyfirinn ekki haft nein áhrif á það hversu marga árásarmaðurinn í Virginia Beach náði að myrða á skömmum tíma.

Repúblikanar sem berjast fyrir því að löglegt verði að kaupa hljóðdeyfa í fleiri ríkjum segja að hljóðdeyfarnir séu nauðsynlegir til að vernda heyrnina.

Virginia er á meðal þeirra 42 ríkja í Bandaríkjunum sem leyfa kaup á hljóðdeyfum.

David Chipman sem berst fyrir strangari byssulöggjöf sagði að það sé algjörlega fáránlegt að leyfa notkun hljóðdeyfa á skammbyssur.Vísir/ap

Hætt við að fólk átti sig ekki á að um árás sé að ræða

Ódæðismaðurinn sem réðist til atlögu í þjónustumiðstöðinni á föstudag náði að myrða fólk á öllum þremur hæðum byggingarinnar. Hljóðdeyfirinn gæti verið ástæðan fyrir því að þeir sem lifðu af árásina sögðust í fyrstu ekki hafa náð að greina hljóðið. Starfsfólkið sagðist ekki hafa áttað sig á því hvað væri um að vera og lýsti ráðaleysi og ringulreið. Einn sagðist hafa heyrt hljóð sem svipaði til naglabyssu.

David Chipman sem berst fyrir strangari byssulöggjöf sagði að það sé algjörlega fáránlegt að leyfa notkun hljóðdeyfa á skammbyssur.

„Hljóðdeyfirinn afskræmir hljóðið með þeim afleiðingum að hætt er við því að fólk geri sér ekki grein fyrir því að hljóðið kemur í raun úr skotvopni.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×