Skoðun

Lítið lært

Hörður Ægisson skrifar
Eina stærstu frétt vikunnar var að finna í tilkynningu Seðlabankans á mánudagsmorgun um nýjar tölur um greiðslujöfnuð við útlönd og erlenda stöðu þjóðarbúsins. Á fyrstu þremur mánuðum ársins batnaði hrein staða þjóðarbúsins um hvorki meira né minna en 270 milljarða og er núna jákvæð sem nemur 21 prósenti af landsframleiðslu. Aldrei hefur staðan verið betri í lýðveldissögunni – Íslendingar hafa ávallt verið lántakendur við útlönd – og er hún nú ein sú hagfelldasta í allri Evrópu. Ástæða er til að ætla að þessi breyting sé varanleg sem endurspeglar þá kerfisbreytingu sem hefur orðið á grunngerð hagkerfisins.

Þetta átti samt ekki að vera hægt. Litið aftur til ársins 2013, þegar erlend staða þjóðarbúsins var neikvæð um þúsund milljarða og raunverulegar áhyggjur voru um sjálfbærni skuldastöðunnar ef illa færi við losun hafta, áttu fáir von á þessum árangri. Þá einskorðaðist leið sumra, einkum stjórnmála- og embættismanna, við það að fara bónleiðina til Evrópska seðlabankans og slá þar risalán í evrum til að hleypa krónueignum erlendra kröfuhafa úr landi. Sem betur fer var önnur leið farin. Vel heppnuð áætlun um afnám hafta, byggð á sérsniðnum innlendum lausnum, breytti stöðunni á einni nóttu þegar kröfuhafar samþykktu að framselja krónueignir að virði meira en 500 milljarðar endurgjaldslaust til ríkisins – og um leið tóku væntingar innlendra og erlendra fjárfesta, ásamt fyrirtækjum og almenningi, stakkaskiptum gagnvart framtíð hagkerfisins.

Nú telja hins vegar sumir að á sama tíma og þessi umskipti hafa orðið á hagkerfinu þá hafi umræðan um þriðja orkupakkann opnað upp á gátt spurninguna um hvort Ísland eigi heima í ESB. Þetta er furðulegt stöðumat. Verkefnið er að verja og betrumbæta EES-samninginn, okkar mikilvægasta alþjóðasamning, gegn þeim öflum sem nú skynja að þau kunni að hafa póli­tíska stundarhagsmuni af því að grafa undan honum. Það er aftur á móti sannarlega ekki að setja enn á ný aðild að ESB á dagskrá, sem myndi valda djúpstæðum ágreiningi í samfélaginu, og þá um leið upptöku evru, sem væri meiriháttar glapræði. Stundum mætti halda að þeir hinir sömu, sem ætti að vera kunnugt um mikla og afgerandi andstöðu þjóðarinnar gegn slíkri vegferð, hafi lítið lært af reynslu síðustu ára heldur snúist málið orðið meira nánast um þráhyggju en raunhæft mat á því hvar íslenskum hagsmunum sé best borgið. Ísland, hvar hagkerfið hvílir á fáum stoðum sem kallar á sveigjanlegt gengisfyrirkomulag og á því fátt sameiginlegt með evrusvæðinu, á ekkert erindi í ESB.

Eftir fordæmalausa efnahagsuppsveiflu hefur þjóðarbúið sjaldan staðið á sterkari stoðum. Sú staðreynd að Ísland er orðið að stórum lánveitenda við útlönd er aðeins eitt, ásamt meðal annars myndarlegum gjaldeyrisforða og litlum skuldum ríkissjóðs, af styrkleikamerkjum hagkerfisins. Ólíkt mörgum Evrópuríkjum, sem hafa yfir að ráða takmörkuðum úrræðum með vextina við núllið og eru föst í spennitreyju óburðugs myntbandalags, erum við vel í stakk búin til að takast á við skammvinnan efnahagssamdrátt. Við skulum nýta okkur þá stöðu, í stað þess að þrátta um eitthvað sem seint mun verða.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×