Jöfn kynjaskipting í nýrri ríkisstjórn Suður-Afríku Atli Ísleifsson skrifar 29. maí 2019 23:18 Cyril Ramaphosa tók við sem forseti Suður-Afríku á síðasta ári. ap
Í fyrsta sinn í sögu Suður-Afríku er jöfn kynjaskipting í ríkisstjórn landsins en forsetinn Cyril Ramaphosa kynnti nýja ríkisstjórn sína í dag. Ramaphosa sagði fyrri ríkisstjórn bæði hafa verið of fjölmenna og óskilvirka og hafi ráðherrum því nú verið fækkað, úr 36 í 28. „Þetta er mikilvæg aðgerð í þá átt að draga úr ríkisbákninu. Margir töldu ríkisstjórn okkar hafa verið útþembda og við gátum öll sammælst um þetta,“ sagði Ramaphosa. Tito Mboweni verður áfram fjármálaráðherra í nýrri stjórn, en hann nýtur mikillar virðingar og hefur af flestum þótt standa sig vel í starfi. David Mabuza, sem er náinn samstarfsmaður forsetans fyrrverandi, Jacob Zuma, verður áfram varaforseti. Cyril Ramaphosa tók við sem leiðtogi flokksins ANC á síðasta ári þegar Zuma var gert að láta af embætti vegna spillingarmála og dvínandi vinsælda flokksins. Kosningar fóru fram í Suður-Afríku þann 8. maí síðastliðinn þar sem ANC hlaut rúmlega 57 prósent atkvæða, sem þó var nokkuð minna en í síðustu kosningum.
Suður-Afríka Tengdar fréttir Fjöldi spillingarmála varð „Teflonforsetanum“ að falli Jacob Zuma sagði af sér forsetaembætti Suður-Afríku í vikunni, flæktur í fjölda spillingarmála. Cyril Ramaphosa tók við af honum. Var áður ræðismaður Íslands í Jóhannesarborg. 17. febrúar 2018 11:00 Gæðingur Mandela verður næsti forseti Suður-Afríku Cyril Ramaphosa tekur við forsetaembættinu í Suður-Afríku af Jacob Zuma. 15. febrúar 2018 11:53 Suður-Afríkumenn velja sér nýtt þing Þingkosningar fóru fram í Suður-Afríku í gær. 9. maí 2019 07:15 Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira
Fjöldi spillingarmála varð „Teflonforsetanum“ að falli Jacob Zuma sagði af sér forsetaembætti Suður-Afríku í vikunni, flæktur í fjölda spillingarmála. Cyril Ramaphosa tók við af honum. Var áður ræðismaður Íslands í Jóhannesarborg. 17. febrúar 2018 11:00
Gæðingur Mandela verður næsti forseti Suður-Afríku Cyril Ramaphosa tekur við forsetaembættinu í Suður-Afríku af Jacob Zuma. 15. febrúar 2018 11:53