Kínverjar bjóða Venesúela hjálp við að koma rafmagni aftur á Kjartan Kjartansson skrifar 13. mars 2019 11:41 Rafmagnslaust hefur verið í sumum hlutum Venesúela frá því á fimmtudag. Vísir/EPA
Stjórnvöld í Kína hafa boðið ríkisstjórn Nicolás Maduro, forseta Venesúela, aðstoð við að koma rafmagni aftur á í landinu. Maduro hefur sakað Bandaríkjastjórn um „tölvuskemmdarverk“ sem hafi valdi mesta rafmagnsleysi í sögu Venesúela. Rafmagnslaust hefur verið í stórum hluta Venesúela, þar á meðal höfuðborginni Caracas, frá því á fimmtudag. Það hefur komið niður á sjúkrahúsum sem eiga erfitt með að knýja búnað sinn og matvæli hafa rotnað. Þá hefur útflutningur á olíu stöðvast. Lu Kang, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, lýsir yfir áhyggjum af því að rafmagnsleysið sé vegna meintrar tölvuárásar. Kínversk stjórnvöld væru reiðubúin að veita aðstoða og tæknilega ráðgjöf til að koma rafmagninu aftur á, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Rafmagni var komið á marga hluta landsins í gær en ljósin eru enn slökkt í sumum hverfum höfuðborgarinnar og vesturhluta landsins nærri landamærunum að Kólumbíu. Sérfræðingar sem Reuters hefur rætt við telja líklegast að rafmagnsleysið megi rekja til tæknilegra vandamála í flutningslínum frá Guri-vatnsaflsvirkjuninni í suðausturhluta Venesúela inn á raforkukerfi landsins. Venesúelsk stjórnvöld hafa látið raforkuinnviði drabbast niður undanfarin ár.
Kína Venesúela Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Fleiri fréttir Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Sjá meira