Norwegian færðist of mikið í fang Kristinn Ingi Jónsson skrifar 6. febrúar 2019 08:00 Norwegian hyggst ráðast í forgangsréttarútboð fyrir allt að þrjá milljarða norskra króna, 42 milljarða íslenskra króna, til að geta staðið við skilmála skuldabréfa félagsins og skjóta styrkari stoðum undir fjárhag sinn. Nordicphotos/Getty
Þegar Bjørn Kjos, forstjóri Norwegian, greindi frá stórhuga áformum norska lággjaldaflugfélagsins um að hefja flug yfir Atlantshafið árið 2012 fór skjálfti um gervallan flugheiminn. Nú hyggst félagið hins vegar hverfa aftur til upprunans. Hlutabréfaverð í norska flugfélaginu, sem Kjos stofnaði árið 1993, hefur fallið um sextíu prósent frá því í apríl í fyrra vegna ótta fjárfesta um að félagið hafi, eftir linnulausan vöxt á síðustu árum, færst of mikið í fang. Fregnir síðustu viku af fyrirhuguðu neyðarútboði flugfélagsins, til þess að tryggja að það geti staðið við skilmála skuldabréfa sinna, staðfestu þennan ótta. „Eins og Þjóðverjar segja, þá er Norwegian að reyna að leika of mörg dýr í dýragarðinum á sama tíma,“ segir greinandinn Philipp Goedeking í samtali við Financial Times. Hann bendir á að Norwegian hafi – allt á sama tíma – boðið upp á ódýrar flugferðir á milli áfangastaða í Evrópu og yfir Atlantshafið og reynt um leið að festa sig í sessi sem flaggskip Noregs í flugi. „En án stærðarhagkvæmni gengur það ekki upp. Það virkaði aldrei,“ bætir Goedeking við. Hlutabréf í Norwegian snarhækkuðu um næstum því 400 prósent í verði frá því í byrjun árs 2012 þar til í apríl árið 2016 þegar fjárfestar fóru fyrst að efast um að ör vöxtur flugfélagsins væri sjálfbær til langframa. Tilkynning flugfélagsins í síðustu viku, um að ráðist yrði í forgangsréttarútboð fyrir þrjá milljarða norskra króna, jafnvirði 42 milljarða íslenskra króna, en sú upphæð er á við meira en hálft markaðsvirði félagsins, kom því fáum fjárfestum og greinendum í opna skjöldu. „Heilt á litið er þetta alls ekki óvænt hlutafjárútgáfa,“ segir Kenneth Sivertsen, greinandi hjá norska verðbréfafyrirtækinu Pareto.Bjørn Kjos, forstjóri Norwegian.IAG seldi sig út Nokkur flugfélög hafa á síðustu árum sýnt kaupum á norska lággjaldaflugfélaginu áhuga við mikinn fögnuð fjárfesta sem telja margir hverjir að yfirtaka á norska félaginu sé besta leiðin til þess að forða því frá gjaldþroti. International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways, lýsti sem kunnugt er yfir áhuga á Norwegian í fyrra og keypti 4,6 prósenta hlut í norska félaginu með það fyrir augum að ganga til yfirtökuviðræðna við stjórn þess. Norwegian, sem tókst að hrista upp í evrópskum flugmarkaði með því að bjóða upp á afar lág fargjöld á löngum flugleiðum, hefur gert stjórnendum IAG lífið leitt um nokkurt skeið og hefði síðarnefnda félagið því getað losað sig við erfiðan keppinaut með yfirtöku á Norwegian. En eftir því sem óveðursskýin í rekstri norska félagsins hafa hrannast upp hefur áhuginn á félaginu farið dvínandi. Stjórnendur IAG sögðust í liðinni viku hafa hætt við áformin um yfirtökuviðræður og selt allan hlut sinn í Norwegian með þeim afleiðingum að hlutabréfaverðið í norska flugfélaginu hríðféll um tuttugu prósent. Gengi bréfanna hélt áfram að falla daginn eftir, þegar tilkynnt var um forgangsréttarútboðið, og nam lækkunin fjórtán prósentum í lok dags.Arðsemi í stað vaxtar Í stuttu máli ganga áform Norwegian, sem stjórnendurnir kynntu í liðinni viku, út á að selja frá sér flugvélar, fresta afhendingu nýrra véla og ná að öðru leyti fram sparnaði upp á allt að tveimur milljörðum norskra króna. Lét Kjos hafa eftir sér í norskum fjölmiðlum að flugfélagið ætlaði nú að leggja áherslu á arðsemi í stað vaxtar. „Norwegian hefur gengið í gegnum tímabil mikils vaxtar. Við munum nú byggja upp sterkan efnahagsreikning sem getur styrkt frekari þróun félagsins,“ nefndi Kjos. Greinendur sem Financial Times ræddi við segja það skýrt traustleikamerki að fjárfestirinn John Fredriksen, ríkasti maður Noregs, hafi ákveðið að taka þátt í útboðinu. Til viðbótar við hann hafa stærstu hluthafarnir, forstjórinn Kjos og stjórnarformaðurinn Bjørn Kise, skuldbundið sig til þess að kaupa hlutabréf fyrir samanlagt 343 milljónir norskra króna. Þá hafa aðrir hluthafar Norwegian jafnframt samþykkt að kaupa bréf fyrir um 267 milljónir norskra króna. Ekki eru þó allir sannfærðir um að innspýtingin muni duga Norwegian til þess að lifa af fram á næsta áratug. Daniel Roeska, greinandi hjá Bernstein, bendir á að hlutafjáraukningin hafi verið nær óhjákvæmileg. „Það er engin leið að þeir hefðu lifað fyrsta ársfjórðung af og því var þetta ekki valkostur heldur nauðsyn. Annars hefðu skuldabréfin lent í greiðslufalli í lok mars. Ég tel ólíklegt, ef félagið á að lifa af til loka árs 2020, að þetta verði síðasta hlutafjárinnspýtingin sem það mun þurfa á að halda,“ segir Roeska.Milljarðatuga rekstrartap Sivertsen hjá Pareto segir að bráðabirgðauppgjör Norwegian fyrir síðasta ár, sem félagið greindi frá í síðustu viku, hafi verið „betra á kostnaðarhliðinni en við gerðum ráð fyrir“. Tölurnar voru hins vegar ekki fagrar. Rekstrartap flugfélagsins nam ríflega 3,8 milljörðum norskra króna, 54 milljörðum íslenskra króna, á árinu borið saman við hagnað upp á 59 milljónir norska króna árið 2017 og 3,1 milljarð norskra króna árið 2016. Í ljósi versnandi fjárhagsstöðu norska félagsins er sameining við annað og stærra flugfélag því, að margra mati, enn besti kosturinn í stöðunni fyrir hluthafa Norwegian. Goedeking bendir til að mynda á að IAG geti snúið aftur síðar meir og fengið félagið á lægra verði en áður hefur boðist. Annar mögulegur kaupandi er þýska flugfélagið Lufthansa sem myndi gjarnan vilja, að sögn viðmælenda Financial Times, eignast verðmæt afgreiðslustæði norska flugfélagsins á Gatwick-flugvelli í nágrenni Lundúna, aðalflugvelli IAG.
Fréttir af flugi Noregur Mest lesið „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Viðskipti innlent Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Raforka til gagnavera snarminnkað Viðskipti innlent Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Fleiri fréttir Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira