Þrír sakfelldir fyrir að myrða blaðamann BBC Samúel Karl Ólason skrifar 3. janúar 2019 16:50 Shah starfaði fyrir BBC í Afganistan og hafði gert það um nokkuð skeið. Vísir/Getty
Þrír afganskir menn hafa verið sakfelldir fyrir að myrða Ahmad Shah, blaðamann BBC. Hann var skotinn til bana í apríl en þrátt fyrir að þrír menn hafi verið sakfelldir hafa nöfn þeirra ekki verið opinberuð. Þar að auki hefur ástæða morðsins ekki verið opinberuð. Einn mannanna var dæmdur til dauða. Annar var dæmdur til allt að 30 ára fangelsisvistar og sá þriðji var dæmdur til allt að sex ára fangelsisvistar. Mennirnir hafa áfrýjað úrskurðinum, samkvæmt BBC.Sérstakur hryðjuverkadómstóll réttaði yfir mönnunum og hefur þeim einnig verið haldið í Parwan fangelsinu. Það er hvað þekktast fyrir að hýsa aðila sem sakaðir eru um, og dæmdir hafa verið fyrir, hryðjuverk. Shah var skotinn til bana þegar hann var að hjóla til heimilis síns í Khost í Afganistan og yfirvöld segja hann hafa verið skotinn af tveimur mönnum á mótorhjóli. Engar hótanir höfðu borist til hans í aðdraganda morðsins, samkvæmt fjölskyldu hans. Talsmaður Talibana þvertók fyrir að þeir hefðu komið að morðinu og sagði Shah hafa verið fagmann og að morð hans hefði verið sorglegt. Dagurinn sem Shah var skotinn, 30. apríl, var sá blóðugasti fyrir blaðamenn í sögu Afganistan. Fyrr um daginn höfðu níu blaðamenn dáið í sprengjuárás í Kabúl.
Afganistan Bretland Mið-Austurlönd Mest lesið Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Fatasöfnunargámar Rauða krossins fjarlægðir á næstu dögum Innlent Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent „Hefðbundið eftirlit er ekki viðhaft að ástæðulausu“ Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Fleiri fréttir 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Sjá meira