Danska þingið samþykkir að vista erlenda glæpamenn á eyju Kjartan Kjartansson skrifar 20. desember 2018 10:52 Við ferjuaðsiglinguna að Lindholm-eyju þar sem ætlunin er að vista útlendingar sem hafa lokið afplánun dóma. Vísir/EPA
Fjárveiting til þess að vista erlenda glæpamenn á lítilli eyju var samþykkt í danska þinginu í dag. Áformum dönsku ríkisstjórnarinnar hefur verið mótmælt á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og frá sveitarstjórnum á staðnum. Ætlunin er að senda allt að hundrað manns sem hafa afplánað fangelsisdóma en ekki er talið öruggt að vísa úr landi af ótta við pyntingar eða aftökur í upprunalandi þeirra út í Lindholm-eyju í sveitarfélaginu Vordingborg. Fólkið hefur hlotið fangelsisdóma fyrir allt frá manndrápum og nauðgunum til vægari brota, að sögn Reuters. Aðstaðan á eyjunni á að vera tilbúin árið 2021 og kosta 759 milljónir danskra króna. Á Lindholm hefur fram að þessu verið starfrækt rannsóknastöð á ýmsum sjúkdómum eins og svínaflensu, hundaæði og öðrum farsóttum. Gert var ráð fyrir fjárveitingu til verkefnisins í fjárlögum ríkisstjórnarinnar sem voru samþykkt í dag. Þeir sem verða vistaðir á Lindholm mega yfirgefa eyjuna á daginn en verða að tilkynna um ferðir sínar og snúa þangað aftur að kvöldi. Michelle Bachelet, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, er á meðal þeirra sem hefur gagnrýnt áform dönsku ríkisstjórnarinnar. Hún sagði hafa alvarlegar áhyggjur af hugmyndinni í gær. Sveitarfélögin á svæðinu eru heldur ekki uppnumin. Borgarstjórinn í Vordingborg segir að íbúar þar telji að þetta sé ekki lausnin á raunverulegum vandamálum. Í Kalvehave, þaðan sem ferjan til Lindholm fer, óttast að miðstöðin í Lindholm eigi eftir að koma niður á ferðamennsku sem bærinn reiðir sig á.
Norðurlönd Mest lesið Lík Jay Slater fundið Erlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Innlent Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Innlent Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Innlent Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Erlent Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld Innlent „Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Innlent Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Innlent Fleiri fréttir J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Ástand hinna særðu sagt stöðugt Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Hinn látni slökkviliðsmaður sem fórnaði sér fyrir fjölskylduna Fundu sprengjur í bíl og á heimili árásarmannsins „Við viljum heim þar sem ástin sigrar“ Ótrúleg mynd virðist sýna kúlu fljúga fram hjá Trump Árásin komi til með að auka stuðning við Trump „Bandaríkjamenn krefjast svara um morðtilræðið“ Segir Guð hafa bjargað sér Bjarni segir atburði gærkvöldsins átakanlega Svona var vettvangur árásarinnar Musk styður Trump Grunaður árásarmaður hét Thomas Matthew Crooks Leiddur blóðugur af kosningafundi eftir skotárás Fannst á lífi eftir tvo sólarhringa neðanjarðar Umfangsmikil árás á Gasa talin hafa banað minnst 71 Maður handtekinn vegna líkamsleifa í ferðatösku Felldi tár þegar málinu var vísað frá „Biden á langa sögu af mismælum“ Sjá meira