May sat fyrir svörum í þinginu Kjartan Kjartansson skrifar 12. desember 2018 12:08 May stendur í ströngu í breska þinginu í dag. Vísir/EPA
Þrátt fyrir vantrausti hafi verið lýst á Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, sem leiðtoga Íhaldsflokksins tók ráðherrann þátt í hefðbundnum fyrirspurnatíma á þingi í hádeginu. Brexit, frekari viðræður við Evrópusambandið og framtíð ríkisstjórnarinnar vou ofarlega á baugi í fyrirspurnum þingmanna. Til stóð að þingið greiddi atkvæði um útgöngusamning May í gær en því var frestað þegar ljóst var að hann yrði kolfelldur. Hluti þingflokks íhaldsmanna lýsti vantrausti á May í dag og greiða þeir atkvæði um forystu hennar í kvöld. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, gekk á May um hvað hafi komið út úr viðræðum hennar við leiðtoga Evrópusambandsins í gær og hvort þingið fengi að greiða atkvæði um útgöngusamning hennar fyrir jólahlé. May svaraði þeim spurningum ekki beint en sakaði Corbyn um að standa á sama um hvað kæmi út úr viðræðunum. Hann hafi verið afdráttarlaus um að hann myndi hafna hvaða samningi sem ríkisstjórnin legði fyrir. Þá krafðist Corbyn þess að May að taka af tvímæli um hvort að til greina kæmi að ganga úr Evrópusambandinu án útgöngusamnings. May svaraði því til að besta leiðin til að forða því að Bretar gengju úr sambandinu án samnings væri að samþykkja samning hennar.
Bretland Brexit Evrópusambandið Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Innlent Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Innlent Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Innlent Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Innlent Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Innlent Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Innlent Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Innlent Engum verði vísað út við myndbirtingu Erlent Fleiri fréttir Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Sjá meira