Lögregla skaut árásarmanninn í Strassborg til bana Atli Ísleifsson skrifar 13. desember 2018 21:27 Franskir fjölmiðlar segja að Chekatt hafi verið felldur af lögregla eftir að hafa skotið á þá. Enginn lögreglumaður særðist í aðgerðinni. Mynd/franska lögreglan
Lögregla í Frakklandi hefur skotið manninn sem grunaður er um árásina á jólamarkaðinn í Strassborg á þriðjudagskvöld til bana. Þetta hafa franskir fjölmiðlar eftir heimildarmönnum sínum innan lögreglunnar. Hinn grunaði, Cherif Chekatt, hafði verið á flótta allt frá því að árásin var gerð á jólamarkaðnum á Klebertorgi í gamla bænum í Strassborg. Þrír féllu á annan tug særðist í árásinni, margir alvarlega. France Info greinir frá því að Chekatt hafi verið felldur af lögreglu eftir að hann fannst þar sem hann var í felum í vöruskemmu í hverfinu Meinau í Strassborg. Hinn 29 ára Chekatt á að hafa hrópað „Allahu Akbar“, „Guð sé mikill“, þegar hann hóf skothríðina á þriðjudagskvöld. Hann hafði áður afplánað fangelsisdóm og vissi lögregla að hann hafði hneigst til róttækni í fangelsinu.Fjölmenn aðgerð Mörg hundruð lögreglumanna í Frakklandi tóku þátt í leitinni að Chekatt. Hverfið Meinau er ekki fjarri hverfinu Neudorf þar sem síðast sást til Chekatt og þar sem hann bjó. Franskir fjölmiðlar segja að Chekatt hafi verið felldur af lögregla eftir að hafa skotið á þá. Enginn lögreglumaður særðist í aðgerðinni.
Frakkland Hryðjuverk í Evrópu Tengdar fréttir Enn leitað að árásarmanninum og þriðji látinn Lögreglan í Frakklandi leitar enn að Chérif Chekatt, sem grunaður er um að hafa skotið minnst þrjá til bana í árás á jólamarkaði í Strassborg á þriðjudaginn. 13. desember 2018 13:26 Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Fleiri fréttir Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira
Enn leitað að árásarmanninum og þriðji látinn Lögreglan í Frakklandi leitar enn að Chérif Chekatt, sem grunaður er um að hafa skotið minnst þrjá til bana í árás á jólamarkaði í Strassborg á þriðjudaginn. 13. desember 2018 13:26