Fótbolti

Marcelo hjólar í blaðamenn: Öfundsjúkir og vitið ekki hvernig á að spila fótbolta

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Marcelo fagnar marki sínu í gær
Marcelo fagnar marki sínu í gær vísir/getty
Brasilíski bakvörðurinn Marcelo lét blaðamenn hafa það óþvegið eftir að Real Madrid vann loksins leik þegar liðið sigraði Viktoria Plzen 2-1 í Meistaradeild Evrópu.

Madridingar voru án sigurs í einn mánuð áður en kom að leiknum gegn Plzen í gær en mark Marcelo tryggði liðinu nauman sigur á tékknesku meisturunum.

Marcelo fór á kostum í viðtölum eftir leik þar sem hann skaut föstum skotum á blaðamenn.

„Það er erfitt þegar maður er ekki að vinna leiki en þið talið um að það sé krísa eins og þið viljið skaða þennan hóp,“ sagði Marcelo og hélt eldræðunni áfram.

„Allir blaðamenn reyna að skaða okkur, kannski er þetta bara öfundsýki af því að þið vitið ekki hvernig á að spila fótbolta.“

Julen Lopetegui, stjóri Real Madrid, hefur verið mikið gagnrýndur og er talið að framtíð hans hangi á bláþræði enda fór Real Madrid í gegnum fjóra leiki í röð án þess að skora mark í taphrinunni á dögunum. Marcelo styður stjórann sinn.

„Hann er frábær. Mér finnst hann vera að vinna gott starf.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×