Lukaku tryggði Belgum sigurinn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. október 2018 20:45 Romelu Lukaku skoraði bæði mörk Belga í kvöld vísir/vilhelm Belgar eru með sex stig á toppi riðils tvö, riðils okkar Íslendinga, í A deild Þjóðadeildarinnar eftir sigur á Sviss á heimavelli í kvöld. Bæði lið höfðu unnið Ísland einu sinni þegar þau mættust í Belgíu í kvöld. Það var markalaust í hálfleik en leikurinn lifnaði við í þeim seinni. Romelu Lukaku kom heimamönnum yfir á 58. mínútu með marki eftir sendingu frá Meunier sem átti stórgóðan leik í liði Belga. Svisslendingar jöfnuðu á 76. mínútu gegn gangi leiksins. Mario Gavranovic skoraði eftir fyrirgjöf Xherdan Shaqiri. Lukaku átti dauðafæri til þess að tryggja Belgum sigurinn á 82. mínútu en skot hans fór yfir markið. Það kom hins vegar ekki að sök því framherjinn stóri skoraði fjórum mínútum seinna. Frábært liðsmark frá Belgum, sóknarspil framerjanna þriggja endar með auðveldu marki frá Lukaku, hann þurfti bara að pota boltanum yfir marklínuna. Ísland mætir Sviss í næsta leik þessa riðils á mánudaginn. Þjóðadeild UEFA
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti