Forseti Bandaríkjanna kallar klámleikkonu hrossasmetti Samúel Karl Ólason skrifar 16. október 2018 16:10 Donald Trump og Stormy Daniels. Vísir/Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar hafi vísað frá máli klámleikkonunnar Stormy Daniels gegn honum. Nú geti hann höfðað mál gegn Daniels, sem heitir í raun Stephanie Clifford, og lögmanni hennar. Þessu lýsti forsetinn yfir nú fyrir skömmu á Twitter og kallaði hann Clifford „hrossasmetti“. Clifford hafði höfðað mál gegn Trump eftir að hann tísti um að hún hefði logið um að henni hafi verið hótað fyrir að ræða um samband þeirra. Taldi Clifford að með þeirri ásökun hefði forsetinn meitt æru hennar. Hún hefur haldið því fram að þau hafi sofið saman árið 2006 og greiddi lögmaður Trump henni 130 þúsund dali í aðdraganda kosninganna 2016 fyrir að segja ekki frá hinu meinta framhjáhaldi.Sjá einnig: Ærumeiðingarmáli klámmyndaleikkonu gegn Trump vísað fráÍ áðurnefndu tísti segir Trump að Clifford viti ekkert um hann og að hún sé svikahrappur.“Federal Judge throws out Stormy Danials lawsuit versus Trump. Trump is entitled to full legal fees.” @FoxNews Great, now I can go after Horseface and her 3rd rate lawyer in the Great State of Texas. She will confirm the letter she signed! She knows nothing about me, a total con! — Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 16, 2018 Clifford svaraði Trump um hæl. „Má ég kynna forseta ykkar,“ skrifaði hún á Twitter. Í tísti sínu gefur hún í skyn að typpi Trump sé smávaxið og segir hann hafa sýnt að hann sé óhæfur í starfi, hati konur og hafi ekki stjórn á sjálfum sér. Þá gefur hún í skyn að Trump hafi kynferðislegan áhuga á dýrum, þar sem hann telji hana líta út eins og hest.Ladies and Gentlemen, may I present your president. In addition to his...umm...shortcomings, he has demonstrated his incompetence, hatred of women and lack of self control on Twitter AGAIN! And perhaps a penchant for bestiality. Game on, Tiny. https://t.co/6DpDD5ELtj— Stormy Daniels (@StormyDaniels) October 16, 2018 Lögmaður Clifford, Michael Avenatti, hefur einnig svarað tísti Trump og segir forsetann vera „ógeðslegan kvenhatara“ og hann sé skammarefni fyrir Bandaríkin. Þá hvetur hann forsetann til að höfða mál gegn þeim. „..því við ætlum að sýna heiminum hve mikill svikahrappur og lygari þú ert. Hversu mörgum öðrum konum hélst þú fram hjá eiginkonu þinni með á meðan þú áttir barn heima?“ skrifar Avenatti.You are a disgusting misogynist and an embarrassment to the United States. Bring everything you have, because we are going to demonstrate to the world what a complete shyster and liar you are. How many other women did you cheat on your wife with while you had a baby at home? https://t.co/npOKOEFju6 — Michael Avenatti (@MichaelAvenatti) October 16, 2018
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Líkir „óvenjulegum“ getnaðarlim Trumps við svepp í nýrri bók Bókin ber heitið Full Disclosure en Daniels tilkynnti um útgáfu hennar í síðustu viku. 18. september 2018 14:09 Ærumeiðingarmáli klámmyndaleikkonu gegn Trump vísað frá Dómarinn taldi að Trump Bandaríkjaforseti hafi mátt saka hana um að búa til sögu um að henni hafi verið hótað. 16. október 2018 10:41 Stormy Daniels í þætti Jimmy Kimmel: „Lá þarna og bað til guðs að ég myndi deyja“ Klámstjarnan og athafnakonan Stormy Daniels, sem kveðst hafa stundað kynlíf með Donald Trump Bandaríkjaforseta árið 2006, veltir því fyrir sér hvort Trump sé hæfur í forsetastólinn – og lýsir getnaðarlim hans í smáatriðum – í nýrri sjálfsævisögu. 5. október 2018 11:30 Konur fjarlægjast Repúblikanaflokkinn Sífellt færri bandarískar konur skilgreina sig sem Repúblikana og fækkunin staðið yfir um nokkuð skeið. Hins vegar virðist sem að hægur straumur hafi orðið að flóði í forsetatíð Donald Trump. 9. október 2018 08:29 Mest lesið Lík Jay Slater fundið Erlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Innlent Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Innlent Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Innlent Betlari til leiðinda í miðbænum Innlent J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Erlent Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld Innlent Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Erlent Fleiri fréttir J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Ástand hinna særðu sagt stöðugt Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Hinn látni slökkviliðsmaður sem fórnaði sér fyrir fjölskylduna Fundu sprengjur í bíl og á heimili árásarmannsins „Við viljum heim þar sem ástin sigrar“ Ótrúleg mynd virðist sýna kúlu fljúga fram hjá Trump Árásin komi til með að auka stuðning við Trump „Bandaríkjamenn krefjast svara um morðtilræðið“ Segir Guð hafa bjargað sér Bjarni segir atburði gærkvöldsins átakanlega Svona var vettvangur árásarinnar Musk styður Trump Grunaður árásarmaður hét Thomas Matthew Crooks Leiddur blóðugur af kosningafundi eftir skotárás Fannst á lífi eftir tvo sólarhringa neðanjarðar Umfangsmikil árás á Gasa talin hafa banað minnst 71 Maður handtekinn vegna líkamsleifa í ferðatösku Felldi tár þegar málinu var vísað frá „Biden á langa sögu af mismælum“ Sjá meira
Líkir „óvenjulegum“ getnaðarlim Trumps við svepp í nýrri bók Bókin ber heitið Full Disclosure en Daniels tilkynnti um útgáfu hennar í síðustu viku. 18. september 2018 14:09
Ærumeiðingarmáli klámmyndaleikkonu gegn Trump vísað frá Dómarinn taldi að Trump Bandaríkjaforseti hafi mátt saka hana um að búa til sögu um að henni hafi verið hótað. 16. október 2018 10:41
Stormy Daniels í þætti Jimmy Kimmel: „Lá þarna og bað til guðs að ég myndi deyja“ Klámstjarnan og athafnakonan Stormy Daniels, sem kveðst hafa stundað kynlíf með Donald Trump Bandaríkjaforseta árið 2006, veltir því fyrir sér hvort Trump sé hæfur í forsetastólinn – og lýsir getnaðarlim hans í smáatriðum – í nýrri sjálfsævisögu. 5. október 2018 11:30
Konur fjarlægjast Repúblikanaflokkinn Sífellt færri bandarískar konur skilgreina sig sem Repúblikana og fækkunin staðið yfir um nokkuð skeið. Hins vegar virðist sem að hægur straumur hafi orðið að flóði í forsetatíð Donald Trump. 9. október 2018 08:29