Lífið

Kemur sennilega ekki til greina að Bond verði kona

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Leikkonur munu sennilega aldrei fá að leika einkaspæjarann James Bond. Þetta segir Barbara Broccoli, aðalframleiðandi kvikmyndanna í samtali við breska ríkisútvarpið BBC.
Leikkonur munu sennilega aldrei fá að leika einkaspæjarann James Bond. Þetta segir Barbara Broccoli, aðalframleiðandi kvikmyndanna í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Vísir/Getty
Leikkonur munu sennilega aldrei fá að leika einkaspæjarann James Bond. Þetta segir Barbara Broccoli, aðalframleiðandi kvikmyndanna í samtali við breska ríkisútvarpið BBC.

„Bond er karlmaður. Hann er karlkyns persóna. Hann var skrifaður sem karlkyns og ég held hann verði sennilega alltaf karlkyns,“ segir framleiðandinn sem hefur séð um að ráða leikara fyrir kvikmyndirnar.

Hún segir að það sé þó í góðu lagi að Bond verði áfram karlmaður. Það þurfi ekki alltaf að breyta karlkyns persónum í kvenkyns að hennar mati.

James Bond stjarnan Daniel Craig, hefur gefið í skyn að næsta Bond-kvikmynd sem kemur út árið 2020 verði hans síðasta sem njósnarinn Bond.

Leikkonurnar Gillian Anderson og Vicky McClure hafa báðar lýst yfir því að þær vilji verða næsti Bond en það var þó meira í gríni en alvöru. Anderson stakk upp á því að nefna mætti aðalpersónuna Jane Bond. Í fyrra sagði forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, að einn daginn yrði James Bond að vera kvenkyns.

Broccoli sagði að það væri betra að búa til fleiri kvenkyns persónur fyrir kvikmyndir og láta söguna passa þeim.

„Ég hef reynt að gera mitt besta og ég held, sérstaklega með kvikmyndirnar hans Daniels [Craig]. Þær eru orðnar miklu nútímalegri með tilliti til birtingarmyndar kvenna,“ segir Broccoli.

Það vakti heilmikla athygli þegar fréttir tóku að spyrjast af því á sumarmánuðum í fyrra að leikkonan Jodie Whittake myndi fara með hlutverk Dr. Who.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.