Innlent

Júlíus Vífill neitaði sök og segist sigurviss

Birgir Olgeirsson skrifar
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist viss um að fara með sigur í málinu.
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist viss um að fara með sigur í málinu. Vísir

Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, neitaði sök þegar mál Héraðssaksóknara gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.



Tímasetning aðalmeðferðar hefur ekki verið ákveðin en verjandi Júlíusar Vífils, Hörður Felix Harðarson, óskaði eftir tveggja vikna fresti áður en aðalmeðferð verður ákveðin. Saksóknari hreyfði ekki mótmælum.



Júlíus Vífill vildi ekki tjá sig um ákæruatriðin á þessu stigi málsins, eins og hann komst að orði við fjölmiðla eftir þingfestinguna. Hann myndi þó ræða við fjölmiðla eins lengi og þeir vildu að málinu loknu. Aðspurður sagðist hann viss um að fara með sigur í málinu.

Ávinningur talinn af skattalagabrotum

Embætti Héraðssaksóknara sakar Júlíus um að hafa hafa þvættað 49 til 57 milljónir króna sem er talinn vera ávinningur af skattalagabrotum hans fyrir meira en áratug og eru sögð fyrnd.



Í ákærunni kom fram að Júlíus eigi að hafa, á árunum 2010 til 2014, geymt á bankareikningi sínum hjá USB banka á Ermasundseyjunni Jersey, andvirði 131 til 146 milljóna króna, í Bandaríkjadölum, evrum og sterlingspundum.



Embætti héraðssaksóknara sagði í ákærunni að Júlíus Vífill hefði viðurkennt við rannsókn málsins að um væri að ræða tekjur sem hann hefði ekki gefið upp til skatts og því ekki greitt tekjuskatt eða útsvar af þeim. Hann hafi hins vegar ekki viljað segja nákvæmlega til um það hvenær umræddra tekna var aflað. 



Geta brotin sem er ákært fyrir varðað allt að sex ára fangelsisvist.



Í síðasta mánuði tjáði Júlíus sig um ákæruna en hann sagðist telja að engar lagalegar forsendur væru fyrir ákærunni. Málið yrði útkljáð fyrir dómstólum.



Júlíus Vífill sagði af sér sem borgarfulltrúi eftir að greint var frá því að nafn hans væri að finna í Panama-skjölunum sem vörðuðu eignir Íslendinga í skattaskjólum. Júlíus sagði að um lífeyrissjóð væri að ræða og tiltók hann ekki í hagsmunaskráningu borgarstjórnar þar sem ekki var tekið fram að skrá ætti lífeyris- og séreignasjóði. 


Tengdar fréttir

Óheimilt að láta rannsóknarfyrirtæki leita að týndum sjóðum

Hæstiréttur hefur snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis skiptastjóra dánarbús Ingvars Helgasonar og Sigríðar Guðmundsdóttur sé heimilt að veita erlendu rannsóknarfyrirtæki umboð til þess að leita að týndum sjóðum sem kunna að vera í eigu dánarbúsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×