Bíó og sjónvarp

Idris Elba kyndir undir orðrómum um að hann verði næsti Bond

Kjartan Kjartansson skrifar
Elba hefur haslað sér völl í Hollywood á undanförnum árum og hefur verið orðaður við hlutverk James Bond frá árinu 2014.
Elba hefur haslað sér völl í Hollywood á undanförnum árum og hefur verið orðaður við hlutverk James Bond frá árinu 2014. Vísir/Getty
Tíst sem breski leikarinn Idris Elba sendi frá sér í dag hefur gefið orðrómum um að hann taki við hlutverki njósnarans James Bonda byr undir báða vængi. Orðrómar um að Elba gæti orðið fyrsti svarti leikarinn til að túlka hlutverk njósnarans lausgyrta hafa verið viðarandi undanfarin fjögur ár.

„Ég heiti Elba, Idris Elba,“ tísti Elba í dag og birti mynd af sjálfum sér með. Aðdáendur hans og James Bond-myndanna hafa tekið tístinu sem vísbendingu um að hann verði næsti Bond, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Stutt er síðan framleiðandi myndanna gaf í skyn að Elba væri tilvalinn í hlutverkið. Daniel Craig, núverandi Bond, ætlar að hætta á leika í myndunum á næsta ári.

Elba er 45 ára gamall. Hann er hvað best þekktur fyrir hlutverk sitt í bandarísku þáttunum The Wire, bresku sakamálaþáttunum Luther og Hollywood-myndum eins og Star Trek og ofurhetjumyndum Marvel.

Hann virtist þó slá á orðróminn skömmu eftir upphaflega tístið. „Ekki trúa skruminu...“ tísti leikarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.