ISIS-liðar felldir af Ísrael og Jórdaníu Samúel Karl Ólason skrifar 2. ágúst 2018 15:22 ISIS-liðar hafa misst yfirráðasvæði sitt í suðvesturhluta Sýrlands. Vísir/AP
Yfirvöld Ísrael og Jórdaníu segja að vígamenn Íslamska ríkisins sem flúið hafi sókn stjórnarhers Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, í átt að landamærum ríkjanna hafi verið felldir. Assad-liðar hafa nú náð fullri stjórn á svæðinu við landamæri Sýrlands og Ísrael og er það í fyrsta sinn frá því að átökin hófust þar í landi árið 2011. Svæðið var áður undir stjórn vígahópsins Khaled Bin Walid Army, sem hafa lýst yfir hollustu við Íslamska ríkið. Ísraelsmenn segjast hafa fellt sjö vígamenn í Gólanhæðum í gærkvöldi og að þeir hafi verið vopnaðir rifflum og handsprengjum. Þá segja yfirvöld Jórdaníu að her þeirra hafi staðið í löngum skotbardaga við vígamenn innan landamæra Jórdaníu og ótilgreindur fjöldi þeirra hafi verið felldur á sólarhring.Mikil spenna hefur verið á svæðinu undanfarnar vikur. Sókn Assad-liða hefur rekið þúsundir manna á flótta í átt að landamærum Ísrael og Jórdaníu og Ísraelsmenn hafa áhyggjur af því að bandamenn Assad innan Íran og Hezhbolla hryðjuverkasamtakanna, sem stutt hafa dyggilega við bakið á Assad, ætli sér að koma sér fyrir við landamærin. Ísraelsmenn skutu niður sýrlenska orrustuþotu sem þeir segja að hafi verið flogið inn fyrir lofthelgi þeirra.Yfirvöld Rússlands hafa tilkynnt að herlögregla þeirra muni vera með aðstöðu við landamærin með því markmiði að stilla til friðar. Átta eftirlitsstöðvum verði komið fyrir og að stjórnarher Assad muni taka við þeim þegar ástandið róist.
Jórdanía Mið-Austurlönd Sýrland Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Fleiri fréttir Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Sjá meira