Réðust á spámann sem reyndi að reisa ættingja þeirra upp frá dauðum Birgir Olgeirsson skrifar 22. júlí 2018 08:44 Fjölskyldan ákvað að grafa líkið upp eftir að hafa heyrt söguna af Jesú og Lasarusi. Vísir/Getty
Lögreglan í Eþíópíu handtók á dögunum karlmann sem reyndi að vekja mann upp frá dauðum. Hinn handtekni heitir Getayawkal Ayele sem hefur stefnt að því að verða spámaður. Hann hafði reynt að vekja lík manns, sem hét Belay Biftu, til lífs með því að liggja ofan á líkinu og hrópa ítrekað: „Belay, vaknaðu!“ Ayele hafði ekki erindi sem erfiði sem reiddi ættingja Biftu til reiði. Réðust þeir á Ayele sem var bjargað af lögreglu sem hafði verið kölluð til. Það er glæpur í Eþíópíu að misþyrma líkum og er Ayele, sem starfar að jafnaði sem heilbrigðisstarfsmaður, í gæsluvarðhaldi. Var atvikið tekið upp á myndband sem hefur ratað á samfélagsmiðla. Atvikið átti sér stað í smábænum Galilee en íbúar þar segja Ayele hafa sagt sorgmæddum ættingjum Biftu frá sögunni af því þegar Jesú reisti Lasarus upp frá dauðum. Eftir að hafa heyrt söguna samþykktu ættingjarnir að grafa Belay upp og leyfa Ayele að reyna að reisa hann upp frá dauðum. Þegar það mistókst varð mikið uppnám á meðal ættingjanna. Sumir féllu í yfirlið á meðan aðrir réðust á Ayele.
Eþíópía Mest lesið Marilyn Manson verður ekki ákærður Erlent Svarar gagnrýni á að Listaháskólinn útiloki ákveðna hópa Innlent Íhugar formannsframboð Innlent „Ég get horft í augun á ykkur“ Innlent Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Innlent Fjórir fluttir með þyrlu eftir árekstur Innlent Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent Hrikalega spenntur að spreyta sig á nýjum vettvangi Innlent Sindri grunaður um fjárdrátt Innlent Ellert B. Schram er fallinn frá Innlent Fleiri fréttir Marilyn Manson verður ekki ákærður Lýsir yfir neyðarástandi vegna átaka í Kólumbíu Sautján ára máli Amöndu Knox lýkur með sakfellingu Eldhaf við stóra olíuvinnslu í Rússlandi Af hverju er Trump reiður út í Panama? Greiddi konu sjö milljónir vegna ásakana Rauðar viðvaranir vegna Éowyn Merz boðar hertar aðgerðir í innflytjendamálum Írar undirbúa sig fyrir mesta óveður í manna minnum Lögbann sett á tilskipun Trumps Mikið reiðarslag fyrir réttindi bandarískra borgara 52 ár fyrir Southport-morðin Með áhyggjur af stöðu hagkerfisins Vara við hvirfilbyljum á Bretlandseyjum Ætla að senda tíu þúsund hermenn að landamærunum Fleiri Kimdátar væntanlegir í Kúrsk: „Það er bara áfram og áfram“ Sólarorka atkvæðameiri en kolabrennsla árið 2024 Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Fulltrúi Ísraels í Eurovision lifði af hryðjuverkaárásirnar sjöunda október Enn einn gróðureldurinn ógnar Los Angeles Trump náðar eiturlyfjabarón huldunetsins Ný lög sögð leyfa giftingar allt að níu ára stúlkna Trump ósáttur við bón biskups um miskunn Söguleg snjókoma í suðurhluta Bandaríkjanna Verður forsætisráðherra Írlands á ný Túaregar björguðu spænskum manni úr klóm Íslamska ríkisins 76 látnir eftir eldsvoðann í Tyrklandi Allir starfsmenn jafnréttisaðgerða sendir í leyfi fyrir lok dags Íhugar að leggja viðbótartoll á allar vörur frá Kína Fjárfesta í gervigreind fyrir 70 billjónir Sjá meira