Erlent

Frægasti gíraffi heims með fangi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
April þrífur hér kálfinn Tajiri.
April þrífur hér kálfinn Tajiri. Vísir/Ap
Gíraffakýrin April, líklega sú þekktasta sinnar tegundar, er með fangi á nýjan leik. Fimmti kálfur hennar er væntanlegur í heiminn í mars á næsta ári.

Hin sautján ára April býr í dýragarði í Harpursville í New York-ríki í Bandaríkjunum. Í apríl í fyrra bar hún kálfi sem hlaut nafnið Tajiri. Áhugasömum var gefinn kostur á að fylgjast með beinu vefstreymi síðustu tvo mánuði meðgöngunnar og alls nýttu 232 milljónir manna sér þann kost.

Búist er við því að fjöldi muni fylgjast með nú þegar afkvæmi hennar og hins sjö ára gamla Olivers kemur í heiminn.

Vinsældir April hafa stöðugt haldið áfram að vaxa síðan henni skaut upp á stjörnuhimininn og April á meðal annars heimasíðu og sína eigin fatalínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×