Lífið

Lala úr Stubbunum og bíll sem reddar málunum

Tinni Sveinsson skrifar
Hópurinn sem tók þátt í námskeiðinu gerði sjö stuttmyndir sem sjá má hér fyrir neðan.
Hópurinn sem tók þátt í námskeiðinu gerði sjö stuttmyndir sem sjá má hér fyrir neðan.
Anra Films býður upp á stuttmyndanámskeið í júní og júlí fyrir 13-16 ára unglinga. Á námskeiðinu fá unglingarnir að vinna að sinni eigin stuttmynd, allt frá handritagerð til eftirvinnslu og fá með þessu móti innsýn inn í þær fjölmörgu greinar sem fyrirfinnast innan kvikmyndageirans. Vísir sýnir hér afraksturinn, sem er skemmtilegur og eru myndirnar af ýmsum toga.

„Við erum svo sannarlega ánægð með afraksturinn hjá krökkunum,“ segir Annetta Ragnarsdóttir, sem stýrir námskeiðinu.

„Hópurinn fékk margar frjóar og fyndnar hugmyndir og var gaman að leiða hann í gegnum handritagerðina. Fram komu ýmsar tegundir mynda sem krakkarnir voru með góða sýn á hvernig þeir gætu framkvæmt. Hópurinn var fljótur að þora að lýsa sínum hugmyndum og koma þeim í framkvæmd með miklum metnaði. Hæfileikaríkur og metnaðarfullur hópur hér á ferð og var mikið klappað og hlegið á forsýningunni þar sem gestum var boðið til að horfa á.“

Hér fyrir neðan má sjá stuttmyndirnar en þær eru sjö talsins.

Lala

Gömul óhugnanleg dúkka finnst, en er það ekki allt í lagi? Höfundur er Karl Einar Karlsson.

Innilokuð

Eitthvað sem þau héldu að væri saklaust breytist í martröð. Höfundur er Helga Xochitl Ingólfsdóttir.

Batman

Þegar þú ert með ofurhæfileika þarftu aldrei að óttast. Höfundur er Elías Karl Elíasson.

Bíllinn

Allt er á afturfótunum, hlutir týnast en óvæntir atburðir leysa allt. Höfundur er Bárður Sigurðsson.

Skrifstofan

Húmor í anda Office þáttanna um fyrirtæki sem selur lampa. Höfundur er Árni Steinn Norðfjörð.

Stór mistök

Verða þau rekin? Eða er það kannski ekki það versta? Höfundur er Anna Bíbí Wium Axelsdóttir.

Þegar kötturinn týnist fara skrýtnir hlutir að gerast. Höfundur er Anna Bíbí Wium Axelsdóttir.


Tengdar fréttir

Skapandi nám­skeið fyrir ung­linga sem hafa á­huga á kvik­mynda­list

Anra Films býður upp á stuttmyndanámskeið í júní og júlí fyrir 13-16 ára unglinga. Á námskeiðinu fá unglingarnir að vinna að sinni eigin stuttmynd, allt frá handritagerð til eftirvinnslu og fá með þessu móti innsýn inn í þær fjölmörgu greinar sem fyrirfinnast innan kvikmyndageirans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.