Bandaríkjaforseti fer af hjörunum vegna bókar Comey Kjartan Kjartansson skrifar 15. apríl 2018 14:53 Trump fór mikinn gegn Comey á Twitter í morgun. Comey er líklega lykilvitni í Rússarannsókninni um hvort Trump hafi reynt að hindra framgang réttvísinnar. Vísir/AFP
Endurminningar James Comey, fyrrverandi forstjóra alríkislögreglunnar FBI, virðast hafa velgt Donald Trump Bandaríkjaforseta undir uggum í morgun. Trump hefur farið hamförum gegn Comey á Twitter í morgun og meðal annars kallað hann „óþokka“, „útsmoginn“ og „ekki gáfaðan“. Bók Comey verður gefin út á þriðjudag en bandarískir fjölmiðlar hafa þegar haft hluta upp úr henni þar sem fyrrverandi forstjórinn fer ekki fögrum orðum um forsetann. Trump rak Comey í maí í fyrra vegna rannsóknar FBI á meintu samráði forsetaframboðs hans við Rússa. Comey kallar Trump meðal annars siðlausan í bókinni. Trump tísti ekki sjaldnar en fimm sinnum um Comey í morgun þar sem hann úthúðar honum á oft torskilinn hátt. „Ótrúlegt, James Comey segir að skoðanakannanir, þar sem Spillta Hillary var með forystu hafi haft á áhrif á meðferð (heimskulega!) á Clinton-tölvupóstarannsókninni. Með öðrum orðum, hann tók ákvarðanir sem byggðust á þeirri staðreynd að hann hélt að hún myndi vinna og hann vildi vinnu. Óþokki!“ tísti Trump. Virtist hann vísa til þess að Comey gefur í skyn í bókinni að hann hafi talið líklegt að Clinton yrði kjörin forseti þegar hann ákvað að gera opinbert að FBI hefði opnað rannsókn á tölvupóstum hennar þegar hún var utanríkisráðherra aðeins rúmri viku fyrir kjördag árið 2016. Hann hafi óttast hvernig það hefði litið út ef hún ynni og FBI hefði haldið því leyndu að rannsókninn hefði verið opnuð aftur.Unbelievably, James Comey states that Polls, where Crooked Hillary was leading, were a factor in the handling (stupidly) of the Clinton Email probe. In other words, he was making decisions based on the fact that he thought she was going to win, and he wanted a job. Slimeball!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 15, 2018 Trump endurtekur í öðru tísti fullyrðingar um að Comey hafi lekið trúnaðarupplýsingum og logið að þingnefnd sem virðast ekki byggðar á neinum rökum sem fram hafa komið og vill að Comey verði stungið í fangelsi fyrir. Þá stiklar forsetinn á stóru í málum sem repúblikanar hafa gagnrýnt Comey, Lorettu Lynch, dómsmálaráðherra Baracks Obama, og Bill Clinton, fyrrverandi forseta, fyrir.The big questions in Comey's badly reviewed book aren't answered like, how come he gave up Classified Information (jail), why did he lie to Congress (jail), why did the DNC refuse to give Server to the FBI (why didn't they TAKE it), why the phony memos, McCabe's $700,000 & more?— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 15, 2018 Comey throws AG Lynch “under the bus!” Why can't we all find out what happened on the tarmac in the back of the plane with Wild Bill and Lynch? Was she promised a Supreme Court seat, or AG, in order to lay off Hillary. No golf and grandkids talk (give us all a break)!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 15, 2018 Forsetinn var þó hvergi nærri hættur þó að hann hafi tekið sér hlé á tístunum um Comey til að verja ummæli sín um loftárásirnar í Sýrlandi. Trump tísti í gær „Markmiðinu náð!“ en það voru sömu orð og urðu alræmd eftir að George W. Bush, fyrrverandi forseti, notaði þau um innrásina í Írak. Þrætti Trump fyrir að hafa nokkru sinni krafið Comey um hollustueið eins og forstjórinn fyrrverandi bar meðal annars um fyrir þingnefnd. Bar Trump fyrir sig eins og hann hefur gjarnan gert með aðra gagnrýni að hann hafi lítið eða ekkert þekkt Comey. „Ég bað Comey aldrei um persónulega hollustu hans. Ég þekkti varla þennan gaur. Bara enn önnur af mörgum lygum hans. „Minnisblöðin“ hans eru fyrir eiginhagsmuni og FÖLSUÐ!“ tísti Trump og vísaði til minnisblaða sem Comey segist hafa haldið um samskipti þeirra í fyrra af ótta við að forsetinn gæti logið um þau síðar.I never asked Comey for Personal Loyalty. I hardly even knew this guy. Just another of his many lies. His “memos” are self serving and FAKE!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 15, 2018 Lokaskotið á Comey var eitt það harðorðasta þar sem forsetinn efaðist um gáfnafar hans. „Útsmogni James Comey, maður sem kemur alltaf illa út og út úr kú (hann er ekki mjög gáfaður!) fer í sögubækurnar sem VERSTI FBI forstjóri sögunnar, með yfirburðum!“Slippery James Comey, a man who always ends up badly and out of whack (he is not smart!), will go down as the WORST FBI Director in history, by far!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 15, 2018
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Comey lýsir Trump sem siðlausum og óbundnum af sannleikanum Bandarískir fjölmiðlar eru byrjaðir að birta stutta útdrætti úr bók fyrrverandi forstjóra FBI sem er væntanleg á þriðjudag. 13. apríl 2018 12:30 Repúblikanar búa sig undir árásir á Comey Bók fyrrverandi forstjóra FBI sem Trump Bandaríkjaforseti rak er væntanleg á þriðjudag. Repúblikanar eru tilbúnir að heyja fjölmiðlastríð gegn honum. 12. apríl 2018 13:35 Trump kallar fyrrverandi forstjóra FBI „óþokka“ Tísti Trump í garð James Comey eru sérstaklega heiftúðleg og harðorð, jafnvel á hans eigin mælikvarða. 13. apríl 2018 12:45 Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti Innlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Sjá meira
Comey lýsir Trump sem siðlausum og óbundnum af sannleikanum Bandarískir fjölmiðlar eru byrjaðir að birta stutta útdrætti úr bók fyrrverandi forstjóra FBI sem er væntanleg á þriðjudag. 13. apríl 2018 12:30
Repúblikanar búa sig undir árásir á Comey Bók fyrrverandi forstjóra FBI sem Trump Bandaríkjaforseti rak er væntanleg á þriðjudag. Repúblikanar eru tilbúnir að heyja fjölmiðlastríð gegn honum. 12. apríl 2018 13:35
Trump kallar fyrrverandi forstjóra FBI „óþokka“ Tísti Trump í garð James Comey eru sérstaklega heiftúðleg og harðorð, jafnvel á hans eigin mælikvarða. 13. apríl 2018 12:45