Trump vill að herinn borgi múrinn Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. mars 2018 22:23 Donald Trump er forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður vera að ýta á eftir því að bandaríski herinn fjármagni landamæramúrinn fyrirhugaða á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.Washington Post greinir frá en í frétt blaðsins segir að Trump hafi viðrað hugmyndina við hans helstu ráðgjafa, auk þess sem að hugmyndin hafi komið upp á fundi Trump og Paul Ryan, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Múrinn var eitt helsta kosningaloforð Trump fyrir forsetakosningarnar árið 2016 en brösuglega hefur gengið að koma byggingu hans af stað. Í fjárlögum sem samþykkt voru á þinginu fyrir skömmu voru 1,6 milljarðar dollara eyrnamerktar múrnum, en Trump hafði farið fram á mun hærri upphæð, eða 25 milljarða dollara. Er Trump sagður hafa vakið athygli á því að varnarmálaráðuneytið hafi fengið háar fjárhæðir í fjárlagafrumvarpinu, um 700 milljarða dollara, og geti því „léttilega“ fjármagnað byggingu múrsins Segir í fréttinni að Trump vonist til þess að geta fengið varnarmálaráðuneytið til þess að fjármagna bygginguna á grundvelli þjóðaröryggis Bandaríkjanna. Þá segir einnig að ólíklegt sé að hægt sé að fara þessa leið til þess að fjármagna byggingu múrsins, en samþykki þingsins þarf til þess.
Donald Trump Mexíkó Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Fleiri fréttir Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Sjá meira