Blái refurinn fjarflytur sig á Ólympíuleikana Sigurgeir Ingi Þorkelsson Eyvinds skrifar 28. febrúar 2018 15:30 Það er ekki annað að sjá en að dýrin veki lukku.
Japanir hafa lokið við að velja lukkudýr fyrir Ólympíuleikana sem fara munu fram í Tókýó sumarið 2020. Lukkudýrin hafa ekki enn verið nefnd en þau eru litrík og þykja lík refum í útliti. BBC greinir frá. Valið fór fram með kosningu þar sem sex og hálf milljón japanskra barna greiddu atkvæði. Munu lukkudýrin taka á móti keppendum og áhorfendum hýr á brá og blása þeim ólympíuanda í brjóst. Lukkudýrin munu hafa andstæða persónuleika en engu að síður búa að djúpri og traustri vináttu. Lukkudýrin munu ekki fá að taka þátt í leikunum þar sem þau búa yfir yfirnáttúrulegum hæfileikum. Blái refurinn getur fjarflutt sig og er því ljóst að erfitt væri fyrir íþróttafólk að etja kappi við hann, jafnvel á góðum degi. Bleiki refurinn býr hins vegar yfir hæfileikanum til að eiga samskipti við steina og sjálfan vindinn.
Erlent Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Fleiri fréttir Óvænt vinstrisveifla samkvæmt útgönguspá Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira