Innlent

Stærstu og feitustu hundar landsins

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Nokkrir af stærstu og feitustu hundum landsins komu saman í dag en þeir eru allir skyldir. Hundarnir geta náð allt að 200 kílóa þyngd. Það var mikið fjör í Hellisskógi á Selfossi þegar nokkrir af hundunum koma saman. Hluti af þeim á heima á Selfossi og hluti á höfuðborgarsvæðinu. Innan við 30 hundar af þessari tegund eru til á Íslandi.

„Þeir eru sem sagt blendingar af frönskum mastiff og bullmastiff,“ segir Eyjólfur Ari Jónsson, einn af eigendum hundanna. „Þeir eru þriggja ára og við erum með eina fimm ára tík líka.“

Eyjólfur segir hundana yfirleitt ná um 120 kílóa þyngd en sá þyngsti sem hann hafi séð hafi verið 200 kíló og risa stór.

„Þetta eru voða rólegir hundar, þó þeir virki ekki þannig núna.“

Það var mikill leikur í hundunum þegar þeir komu saman í dag eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Eyjólfur á stærsta hund hópsins sem heitir Þór. Hann segir þetta vera mikla heimilishunda.

„Þeir liggja bara í leti allan daginn og það er ekkert vesen á þeim. Það er aðallega stærðin á þeim sem að flækist fyrir fólki en annars er þetta bara eins og ofvaxinn chihuahua.“

Sara Mjöll á hundinn Hektor sem er fjögurra ára gamall.

„Þetta er litla barnið mitt. Það er svolítið svoleiðis,“ segir Sara og bætir við: „Eða stóra barnið.“ Hún segir þessa hunda vera mjög trausta og þeir séu mjög næmir.

„Þetta er mannlegasti hundur sem að ég hef nokkurn tímann kynnst.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×