Sakaður um að hafa áreitt ungliða kynferðislega Atli Ísleifsson skrifar 22. desember 2017 10:39 Trond Giske hefur átt sæti á norska þinginu frá 1997. Vísir/EPA
Trond Giske, varaformaður norska Verkamannaflokksins, hefur verið sakaður um að hafa áreitt stjórnmálakonu í ungliðahreyfingu flokksins kynferðislega. NRK greinir frá því að konan hafi í kjölfarið sagt skilið við stjórnmálin, en atvikin eiga að hafa átt sér stað fyrir nokkrum árum síðan. Giske segir svari til NRK að hann vilji ekki tjá sig um þetta einstaka mál, en kveðst harma hegðun sína. Miðstjórn Verkamannaflokksins var kölluð til neyðarfundar í gærkvöldi vegna málsins, en þar kom fram að fleiri konur hafi nú sakað Giske um að hafa veitt þeim „óumbeðna athygli“. Veitti Giske áminningu Formaðurinn Jonas Gahr Støre staðfesti að ásakanir snúi að „óþægilegum atvikum af kynferðislegum toga“ og að hann hafi veitt Giske áminningu vegna málsins. Málið sé tekið mjög alvarlega, en Støre kveðst þó enn bera traust til Giske. Verkamannaflokkurinn er stærsti flokkurinn á norska þinginu en er í stjórnarandstöðu. Hann hlaut 27,4 prósent fylgi í þingkosningunum í haust. Giske hefur átt sæti á norska þinginu frá 1997. Hann hefur á ferli sínum gegnt embætti ráðherra kirkju- og menntamála, menningarmála og viðskipta- og iðnaðarmála.
Noregur MeToo Mest lesið Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Innlent Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Innlent Allir farþegarnir látnir Erlent Klakastykki stórskemmdi bíl Innlent Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Innlent Baráttukonur minnast Ólafar Töru Innlent Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Innlent Ógnaði fólki með barefli í bænum Innlent Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Mexíkó og Kanada svara tollum Trump með sínum eigin Allir farþegarnir látnir Hamas lætur þrjá gísla lausa Sjúkraflugvél hrapaði í Fíladelfíu Læknir ákærður fyrir að ávísa þungunarrofslyfi Trump leggur háa tolla á nágrannaþjóðirnar Morð á kóranbrennumanni gæti tengst erlendu ríki Líkfundur í ánni þar sem síðast sást til tvíburasystra Segja að flytja þurfi 2.500 börn frá Gasa til að bjarga lífi þeirra Nærri helmingur segir Danmörku standa ógn af Bandaríkjunum Búið að ná upp gögnum úr flugstjórnarklefa farþegavélarinnar Kenndi Biden, flugmönnum, flugumferðarstjórum og „DEI“ um slysið Þyrlan í hefðbundnu æfingarflugi Merkel setur ofan í við arftaka sinn vegna stuðnings öfgahægrimanna Taka norsku stjórnina úr sambandi vegna orkumála Búið að ná 28 líkum upp úr ísilögðu vatninu Íhaldsmenn taka höndum saman við öfgamenn í aðdraganda kosninga Rússneskir heimsmeistarar meðal farþega vélarinnar Norska stjórnin gæti sprungið í dag Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð UNRWA hættir líklega allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag Nítján lík sögð hafa fundist eftir flugslys í Washington Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Tekur formlega völd í Sýrlandi en heitir kosningum Fjórir Norðmenn látnir eftir snjóflóð í Ölpunum Vill senda þrjátíu þúsund innflytjendur til Guantánamo Draga minnisblað til baka eftir mikla óreiðu Fjöldi rúmenskra málaliða gafst upp í Rúanda Tengja hrinu sprenginga í Svíþjóð við glæpasamtök Sjá meira