Innlent

Uppselt á kattahóteli Kattholts yfir hátíðarnar

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Starfsfólk Kattholts hefur haft í nógu að snúast yfir hátíðarnar en uppbókað er á kattahótelinu sem þar er starfrækt. Þá er hugað að sex kettlingum sem fundust í pappakassa á víðavangi á dögunum.  Kisurnar eru í góðum höndum en þær fengu rækjur og soðinn fisk í jólamatinn. Á hótelinu er pláss fyrir um fimmtíu til sextíu ketti. Jólin eru annasamur tími á hótelinu en í ár er allt uppbókað yfir jólin.

„Þetta er mjög vinsæll valkostur fyrir kattaeigendur. Fólki líður vel með að vita af kisunum sínum öruggum. Þetta er alltaf að verða vinsælla og vinsælla með hverju ári“ segir Halldóra Snorradóttir, ritari Kattavinafélags Íslands.

Eins og staðan er í dag eru aðeins örfá hótelpláss laus yfir áramótin. „Ef fólk er á síðasta snúning þá er um að gera að hafa samband og tryggja sínum ketti pláss“

Í kattholti er nú einnig fjöldi katta í heimilisleit en þar búa kisur sem finnast á vergangi og eru týndar eða yfirgefnar.  Sex kettlingar fundust til að mynda í pappakassa á víðavangi á höfuðborgarsvæðinu í byrjun desember og dvelja nú í Kattholti. Einhver hafði skilið þá eftir aleina og yfirgefna.

„Og það var bara fyrir tilviljun að þeir fundust annars hefðu þeir dáið úti. Fyrstu vikuna voru þetta tíðar pelagjafir og við vorum að koma hérna kvöld og morgna til að sinna þeim. En núna eru þeir farnir að lepja og borða sjálfir og eru afksaplega duglegir og hafa braggast vel,“ segir Halldóra en kettlingarnir fara svo í heimilisleit eftir áramótin.

Óhætt er að segja að kettirnir í Kattholti séu í góðum höndum en þar er starfsmaður á vakt alla daga ársins að sögn Halldóru.  „Um hátíðarnar fá kistunar rækjur og soðinn fisk í jólamatinn og mikið knús og klapp. Við pössum upp á að kisunum líði vel hérna alltaf“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×