Samþykkt að færa Brexit-viðræður á næsta stig Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 15. desember 2017 12:52 Theresa May og Jean Claude Juncker. Vísir/Getty
Leiðtogar Evrópusambandsins hafa samþykkt að færa viðræður við yfirvöld í Bretlandi um útgöngu Bretlands úr ESB yfir á næsta stig. Viðræðurnar munu nú snúast um hvernig langtímasambandi Bretlands og ESB verði háttað. BBC greinir frá. Reiknað er með að viðræðurnar hefjist snemma á næsta ári. Er reiknað með að fyrst um sinn verði rætt um Bretland og ESB muni taka á þeim umskiptum sem verða á fyrstu tveimur árunum eftir að Bretland yfirgefur ESB á formlegan hátt. Stefnt er að því að það verði í mars 2019. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði ákvörðun leiðtoga ESB en Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að nú fyrst verði viðræðurnar snúnar. Ríkjum innan ESB er nú einnig heimilt að hefja tvíhliða viðræður við Bretland um framtíðarfyrirkomulag samskipta sín á milli en reiknað er með að viðræður ESB og Bretlands um efnahagslega samvinnu hefjist ekki fyrr en í mars. Þá er reiknað með að í næstu viku muni May kynna áætlanir ríkisstjórnar Bretlands um hvernig hún sjái fyrir sér framtíð Bretlands utan ESB.
Brexit Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira