Langtímaspár benda til nokkurra vikna friðar frá lægðum Kjartan Kjartansson skrifar 8. nóvember 2017 16:45 Hæð liggur yfir Grænlandi í þriðju viku nóvember og lægðir eru langt undan á þessu korti sem Trausti Jónsson vann upp úr spá Evrópureiknimiðstöðvarinnar. Veðurstofa Íslands/Trausti Jónsson
Lítil úrkoma og hægur vindur gætu fylgt uppbroti á hringrás lofts á norðurhveli síðar í þessum mánuði og varað í tvær til þrjár vikur. Langtímaveðurspár benda óvenju eindregið til þess að veðurkerfi yfir Norður-Atlantshafi raðist upp á nýtt, að sögn Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings. Yfirleitt vísa langtímaveðurspár út og suður en nú ber svo við að evrópskar og bandarískar spár sýna óvenju staðfastlega verulegar breytingar á veðurfari eftir 13-15 daga. Þá eiga vestanvindar sem eru ríkjandi í háloftunum yfir Atlantshafi að veikjast og hæðahryggur að myndast yfir Grænlandi. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, vekur meðal annars athygli á þessu á bloggsíðu sinni. Einar segir að við þessi umskipti hækki loftþrýstingur við Ísland og vindar úr norðri og austri verði ríkjandi. Það sé þekkt afleiðing svonefndra fyrirstöðuhæða við eða yfir Grænlandi. „Þá fáum við frið fyrir lægðunum á meðan og veðurlagið einkennist af mörgum björtum dögum með staðviðri og stillum. Það getur verið kalt inn til landsins en frostlítið við ströndina. Það þarf ekki endilega að fylgja þessu heimskautaloft úr norðri þó að það sé nú stundum raunin. Það getur líka fylgt þessu tiltölulega milt loft sem er ættað úr austri og suðaustri,“ segir hann. Fyrirstöðuhæðir af þessu tagi geta varað í lengri tíma, jafnvel tvær til þrjár vikur, en Einar segir einnig dæmi um að þær endist skemur, aðeins nokkra daga. „En svo getur líka verið að þessi spá sé hreinasta vitleysa og tilviljun að svona hittist á,“ segir Einar sem vill hafa varann á um langtímaspána.Á skýringarmynd Einars má sjá stöðuna við Atlantshaf í gær.Veðurstofa Íslands/Einar SveinbjörnssonGetur valdið fimbulkulda á meginlandi Evrópu og Asíu Breytingarnar sem langtímaspárnar virðast benda eindregið til að verði eru þekktar sem sveifla í svokölluðum AO-vísi sem mælir í raun meðalstyrk vestanvindsins umhverfis norðurhvelið á ákveðnu breiddarbili. Þegar allt er með felldu knýr hitamunur á milli hitabeltisins í suðri og norðurskautsins vestanvinda yfir Atlantshafi. Stundum gerist það þó að vestanáttin veikist og færist til suðurs eins og nú er spáð að gerist. Sagt er AO-sveiflan sé þá í neikvæðum fasa. Þá streymir þurrt og svalt loft frekar frá norðri til suðurs í stað mildara og rakara loftsins frá vestri yfir norðanverðu Atlantshafi. Einar segir að sveiflur í AO-vísinum geti stundum haft afgerandi þýðingu fyrir veðurlag árstíðarinnar, ekki síst á meginlandi Evrópu. „Þetta hefur stundum í för með sér að milt loft ættað af Atlantshafi nær þá ekki að streyma yfir Evrópu og þá sígur Síberíukuldinn á hægt og rólega yfir, sérstaklega ef þetta gerist á þessum árstíma,“ segir hann. Þannig getur vetur á meginlandi Evrópu og Asíu orðið fimbuldkaldir.Staðan 20. nóvember skv. langtímaspám með skýringum Einars.Veðurstofa Íslands/Einar SveinbjörnssonÓvenjuhlýr sjór gæti vegið upp á móti köldu loftiBirtingarmyndir neikvæða fasa AO-sveiflunnar á Íslandi geta verið með ýmsum hætti, að sögn Einars. „Það getur verið kalt en það getur líka verið fremur milt. Ef fyrirstöðuhæðin hittir á að vera suður af Íslandi þá erum við hér í sunnan- og suðvestanáttum sem koma af hlýjum hafsvæðum. Ef fyrirstaðan er yfir Grænlandi og þar fyrir vestan þá er það ávísun á kulda,“ segir hann. Eins og er benda langtímaspárnar til þess að vindáttirnar við Ísland verði norð- og austlægar og þá gæti orðið kalt inn til landsins. Það þýðir þó ekki endilega ískalt loft streymi að landinu. „Svo spilar líka inn í það að sjórinn, bæði fyrir norðan og austan landið er óvenjulega hlýr, einni til tveimur gráðum hlýrri en í meðalári. Það vermir líka ef ske kynni að það berist til okkar kaldir loftmassar,“ segir Einar.Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur.VísirAukin spágeta með að horfa til heiðhvolfsins Það sem fólk þekkir og upplifar sem veður á sér stað í veðrahvolfinu, um það bil neðstu tíu kílómetrunum lofthjúpsins. Aðstæður í heiðhvolfinu fyrir ofan það eru stöðugari með sterkum ríkjandi vestanáttum á veturna. Áður fyrr álitu vísindamenn að aðstæður í heiðhvolfinu hefðu lítil áhrif á veður í veðrahvolfinu. Einar segir hins vegar að möguleg tengsl sviptinganna í veðurkerfunum við aðstæður í heiðhvolfinu séu eitt það áhugaverðasta við langtímaspárnar nú. „Menn eru alltaf að sjá það betur og betur að það eru tengsl þarna á milli,“ segir hann. Þannig eru vísbendingar um að bjögun á loftstraumum í tuttugu til þrjátíu kílómetra hæð varpist niður í veðrahvolfið og umstafli veðurkerfum. „Þetta er eitt þeirra rannsóknasviða í veðurfræði sem eru mjög spennandi um þessar mundir þar sem menn eru að kanna þessi tengsl. Það sem þau færa okkur er meðal annars möguleikinn á því að sjá svona hluti lengra fram í tímann. Þetta eykur spágetun að þekkja þetta samhengi,“ segir hann.
Veður Mest lesið Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Erlent Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Innlent Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Erlent Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Erlent „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Innlent Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Innlent Trump ekki dæmdur í fangelsi Erlent Fleiri fréttir Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Hörmungar í Los Angeles og myrkur í Smyrilshlíð Nýr leikskóli rís í Elliðaárdal Slæm meðferð Bandaríkjanna á frumbyggjum vekur ótta á Grænlandi Rektor MH tekur við skólamálum borgarinnar Bíll illa farinn eftir að hafa verið ekið á vegrið Almenningur þurfi ekki að hafa áhyggjur af fuglaflensu Hækka vöktunarstig en segja kvikuhreyfingar ekki nærri yfirborði Högum þykir miður að byggingin valdi óþægindum Sjá meira