Lífið

Fjórtán fermetra herbergi á 100 þúsund og klósettið er inni í sturtunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Allt til alls í þessu fjórtán fermetra herbergi.
Allt til alls í þessu fjórtán fermetra herbergi.
Inni á Facebook-síðunni Leiga á Íslandi - Rent in Iceland má sjá auglýsingu um laust herbergi til leigu í Hraunbæ.

Auglýsingin hefur vakið mikla athygli en það er Phượng Dương sem leigir út herbergið.

Um er að ræða fjórtán fermetra herbergi með sérinngangi, eldhúsi og baðherbergi. Leigan er 100 þúsund en það sem gerir baðherbergisaðstöðuna vægast sagt sérstaka er að klósettið er inni í sturtunni.

Það er því hægt að sitja á klósettinu og sturta sig á sama tíma.

Uppfært klukkan 15:56 - Auglýsingin hefur verið fjarlægð af Facebook-síðunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.