Bílskúrinn: Martröð Ferrari í Malasíu Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 2. október 2017 22:30 Max Verstappen fann góða leið til að halda upp á tvítugsafmælið. Vísir/Getty
Max Verstappen á Red Bull vann Formúlu 1 kappaksturinn í Malasíu um helgina. Ferrari liðið átti afleidda helgi. Martröð Ferrari, forskot Lewis Hamilton, sigur tvítuga mannsins, hvar er hraði Mercedes liðsins? Hver var ökumaður keppninnar? Allt þetta verður til umræðu í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.Þessi mynd lýsir helgi Ferrari liðsins ágætlega.Vísir/GettyMartröð Ferrari Mórallinn í Ferrari liðinu hefur oft verið betri, báðir bílar liðsins féllu úr leik í ræsingu í síðustu keppni, í fyrsta skipti í sögu þessa goðsagnakennda liðs. Það má því ætla að metnaðurinn hafi verið í hámarki í upphafi keppnishelgarinnar í Malasíu. Æfingarnar á föstudegi litu vel út. Það kom svo upp rafmagnsvesen í vél Sebastian Vettel, vélvirkjar Ferrari unnu þrekvirki þegar þeir skiptu um vél í bílnum á milli æfingar á laugardagsmorgni og tímatökunnar. Bilunin var í tenginu á milli vélar og túrbínu. Vettel lagði af stað í tímatökuna en fékk ekkert afl og gat ekki sett tíma. Hann þurfti að ræsa afastur. Mikill skellur fyrir titilbaráttu Þjóðverjans. Á ráslínunni kom upp sama bilun í bíl Kimi Raikkonen. Honum var trillað inn á þjónustusvæði þar sem vélvirkjarnir tóku til við að tæta bílinn í sundur en allt kom fyrir ekki, keppnin hófst án Raikkonen. Vettel gerði sitt besta til að lágmarka skaðan og kom sér með mögnuðum akstri upp í fjórða sæti. Eitt er víst, Ferrari þurfti á hughreystandi helgi að halda, en liðið þarf að minnsta kosti að bíða hennar þangað til í Japan um komandi helgi. Ekki skánaði staðan mikið eftir kappaksturinn í Malasíu þegar Lance Stroll keyrði á Vettel á innhringnum, Ferrari bíllinn kom töluvert illa út úr því. Eins tók Vettel stýrið með sér úr bílnum sem er bannað. Eitthvað hefur hann að fela á stýrinu sem hann vill ekki hleypa neinum nálægt. Til að bæta gráu ofan á svart þá settist hann upp á Sauber bíl Pascal Wehrlein og þáði far með samlanda sínum, slíkt er einnig bannað.Það er nokkuð ljóst að annar þessara verður meistari en hvor? Líkurnar eru með Hamilton en það er ómögulegt að fullyrða.Vísir/GettyStaðan í heimsmeistarakeppni ökumanna Lewis Hamilton hafnaði í öðru sæti í Malasíu og jók þar með forskot sitt í heimsmeistarakeppni ökumanna í 34 stig, úr 28. Hann er því afar líklegur til að vera kominn langt með að tryggja sér titilinn, eða hvað? Þegar fimm keppnir eru eftir á tímabilinu er ljóst að ef Vettel vinnur allar keppnirnar sem eftir eru og Hamilton verður annar er Vettel meistari. Nú, falli Hamilton úr leik í einni keppni sem Vettel vinnur, þá er munurinn skyndilega orðinn sáralítill. Það er því enn hægt að segja eins og sagt er svo oft, það getur allt gerst í Formúlu 1.Max Verstappen tók fram úr Hamilton á ráskaflanum.Vísir/GettyMax Verstappen vann, en hvernig?Max Verstappen átti afmæli á laugardaginn, þá varð hann tvítugur. Hvað gerir ungur maður á sunnudeginum eftir að hann verður tvítugur? Verstappen gerði sér lítið fyrir og vann einn kappakstur í Formúlu 1. Flestir aðrir eru ekki í standi til að gera neitt líkamlega erfitt. Hann tók fram úr Hamilton sem þá leiddi keppnina á ráskaflanum snemma í keppninni og stakk svo einfaldlega af. Það var greinilegt að Hamilton hafði ekki hraðann sem þurfti til að halda í við Hollendinginn. Verstappen tók svo við að stýra hraðanum og ók af yfirvegun, skynsemi og öryggi alla leið í endamark og steig ekki feilspor á leiðinni. Vel gert hjá Max, sem vann þar með sína aðra keppni. Fyrstu keppnina vann hann á Spáni í fyrra, í fyrstu keppni sinni hjá Red Bull, en hann fékk það sæti þegar Daniil Kvyat var lækkaður í tign og tók sæti Verstappen hjá systurliðinu, Toro Rosso. Um helgina sem leið var Kvyat ekki með, því Pierre Gasly fékk að spreyta sig í bíl Rússans, og Verstappen vann. Þegar Kvyat fær stöðulækkun vinnur Verstappen.Er Mercedes liðið að missa flugið?Vísir/GettyMercedes að missa flugið?Mercedes, meistarar undanfarinna ára, hafa verið nánast ósnertanlegir síðan 2014, þegar Hybrid tímabilið hófst. Í Singapúr fyrir tveimur vikum átti liðið afleidda byrjun og Hamilton vann þá keppni einungis vegna þess að þrír líklegustu aðilarnir til að vinna hana féllu úr leik í ræsingu. Núna um helgina var lítið skárra upp á teningnum. Æfingarnar voru liðinu erfiðar og vonlaust virtist að finna jafnvægi í bílnum. Tímatakan var ágæt, en Hamilton virtist einfaldlega finna töframátt sinn í einn hring sem dugði til að tryggja ráspól. Hver veit hvað hefði gerst ef Vettel hefði verið með? Þegar í keppnina var komið gat Hamilton alls ekki haldið aftur af Verstappen. Valtteri Bottas, gat ekki einu sinni haldið aftur af Vettel sem var þá búinn að taka fram úr um það bil öllum, nema Mercedes og Red Bull mönnum. Miðað við æfingarnar hefði Ferrari auðveldlega haft sigur í keppninni ef bílarnir hefðu veriuð í lagi alla helgina.Sebastian Vettel vann sig upp um flest sæti í keppninni og barðist af hörku í gegnum afar erfiða helgi.Vísir/GettyÖkumaður keppninnarVettel var ekki beint heppnasti maður helgarinnar en hann ók sennilega eina bestu keppnina, frá 20. sæti upp í það fjórða. Hann gerði meira að segja heiðarlega tilraun til að stela síðasta verðlaunasætinu af Daniel Ricciardo og munaði minnstu. Sebastian Vettel hlýtur heiðurinn að vera ökumaður keppninnar, bæði hjá blaðamanni Vísis og áhorfendum því hann var valinn ökumaður keppninnar í formlegri könnun FIA.
Formúla Tengdar fréttir Sjáðu ótrúlegan árekstur Stroll og Vettel Sebastian Vettel og Lance Stroll lentu í undarlegu samstuði á innhringnum eftir keppnina í Malasíu. 1. október 2017 17:00 Afmælisbarnið vann í Malasíu | Sjáðu uppgjörsþáttinn Rúnar Jónsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sport fer yfir öll helstu atvikin úr spennandi Malasíukappakstri í Formúlu 1. Uppgjörsþátturinn er í spilara í fréttinni. 1. október 2017 20:30 Ricciardo: Vettel átti bara eina alvöru tilraun Max Verstappen vann í annað sinn á ferlinum í dag þegar hann kom fyrstur í mark í Malasíu. Hann varð tvítugur í gær og þetta var afar viðeigandi afmælisgjöf. Hver sagði hvað eftir keppnina? 1. október 2017 13:30 Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Fótbolti Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Enski boltinn Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Enski boltinn „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn Fleiri fréttir Michael Schumacher verður afi Meistarinn með nýjan félaga eftir að Perez var sparkað Harður diskur með viðkvæmum upplýsingum um Schumacher týndur Fékk myndir sem áttu að sýna Schumacher við „slæma heilsu“ Norris vann og tryggði McLaren fyrsta titilinn í 26 ár McLaren langt komið með að tryggja sér heimsmeistaratitil bílasmiða Lítill Verstappen á leiðinni Russell segir að Verstappen hafi hótað að klessa á hann Heimavöllur heimsmeistarans tekinn af dagskrá Dagar Perez hjá Red Bull virðast taldir Hill hneykslaður: „Er Schumacher harmleikurinn ekki nóg fyrir sumt fólk?“ Lætur Bretann heyra það: „Mín virðing fyrir honum er engin“ Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Segir að Verstappen ætti að byrja með uppistand Fimmtán ára og ætlar að verða fyrsta konan til að vinna Formúlu 1 Segir að Schumacher hafi ekki mætt í brúðkaupið Cadillac á leiðinni í Formúlu 1 Verstappen áfram hjá Red Bull Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Russell á ráspól í fyrramálið Hamilton vildi hætta eftir Brasilíukappaksturinn Gagnrýnir hómófóbísk ummæli pabbans um Ralf Schumacher „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Tryggja framtíð formúlu 1 í Mónakó Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Enginn Finni í formúlu 1 í fyrsta sinn í átján ár Svona verður Verstappen heimsmeistari í borg syndanna Mercedes þvertekur fyrir orðróm um Hamilton Hamilton hraunar yfir bílinn sinn og hótar að hætta strax Sjá meira
Sjáðu ótrúlegan árekstur Stroll og Vettel Sebastian Vettel og Lance Stroll lentu í undarlegu samstuði á innhringnum eftir keppnina í Malasíu. 1. október 2017 17:00
Afmælisbarnið vann í Malasíu | Sjáðu uppgjörsþáttinn Rúnar Jónsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sport fer yfir öll helstu atvikin úr spennandi Malasíukappakstri í Formúlu 1. Uppgjörsþátturinn er í spilara í fréttinni. 1. október 2017 20:30
Ricciardo: Vettel átti bara eina alvöru tilraun Max Verstappen vann í annað sinn á ferlinum í dag þegar hann kom fyrstur í mark í Malasíu. Hann varð tvítugur í gær og þetta var afar viðeigandi afmælisgjöf. Hver sagði hvað eftir keppnina? 1. október 2017 13:30