Skoðun

Óskiljanleg og háskaleg vaxta- og gengisstjórn Seðlabanka

Ole Anton Bieltvedt skrifar
Fram að banka- og fjármálakreppunni viðgekkst sú stefna meðal stjórnenda peningamála, að þeir, sem ættu fé, fjármagnseigendur, ættu rétt á að fá meira fé út á það fé, án nokkurra aðgerða, án fjárfestingar eða áhættu. Ég er auðvitað að tala um vextina, sem fjármagnseigendur fengu á áhættulausar og dauðar bankainnistæður. Þeir, sem urðu að greiða þessa vexti, voru vitaskuld lántakendur, skuldarar, og urðu þeir fátækari og fátækari meðan þeir ríku urðu ríkari og ríkari, af engu.

Vaxtastefna Seðlabanka úrelt

Bankakreppan kenndi ráðamönnum, nema kannske Seðlabankastjóra og peningastefnunefnd, að þetta kerfi stæðist ekki, hvorki siðferðislega né í framkvæmd, enda átti það stóran þátt í kreppunni, og féllu því allir vakandi og upplýstir stjórnendur peningamála frá þessari raunvaxtastefnu á árunum eftir 2008.

Raunvextir rífa upp krónuna

Seðlabankinn hefur haft 2,5% verðbólgumarkmið síðustu árin, sem er í lagi, en að byggja það inn í stýrivextina og bæta svo við 2-3%, til að raunvextir náist, er ekki í lagi, einkum, þegar engin önnur vestræn þjóð gerir það og raunverðbólga er aðeins 1,5%.

Stýrivextir hér eru því 4,5%, meðan að þeir eru við núllið annars staðar, og rífur þetta upp krónuna og afskræmir tekjur og gjöld.

Auk yfirkeyrðrar krónu er afleiðingin, að vextir til fólks hér eru á okurstigi, og verða menn m.a. að greiða íbúðir sínar margfalt, kannske 3-5 sinnum, vegna okurvaxtanna, meðan aðrir Evrópubúar greiða sínar íbúðir 1,5-2 sinnum, þökk sé lágvöxtum á evrusvæðinu.

Hverjar eru afleiðingarnar

Fyrir rúmu ári síðan voru um 140 krónur í evru. Í millitíðinni fór Evran um tíma í 110 krónur, og lækkuðu tekjur útflutningsatvinnuveganna því um allt að 22% á einu ári. Ég er að tala um ferðaþjónustu, sjávarútveg, áliðnað, hátækniiðnað og flutningaþjónustu. Margar helztu atvinnugreinar landsins. Á sama tíma hefur ýmis rekstrarkostnaður þessara fyrirtækja hækkað. Er afkoma þeirra því um 30% lakari nú, en fyrir ári. Hver lifir slíkt af!?

Það hlýtur því að vera öllum ljóst – nema kannske Seðlabankamönnum – að þessi hækkun á krónunni fær ekki staðizt. Útflutningsfyrirtækin fara úr sæmilegri eða góðri afkomu, sem er nauðsynleg og eðlileg, í bullandi tap. Allavega flest þeirra.

Ef útflutningsfyrirtækin okkar lenda í tapi og greiðsluerfiðleikum, sem síðan bitnar á starfsmönnum, innlendum þjónustuaðilum, eigendum, bönkum og ríkinu sjálfu, því ekki falla skattar og skyldur niður, er hér vá fyrir dyrum; ný kreppa í uppsiglingu. Þetta er dauðans alvara!

Nauðsynleg gengisleiðrétting stöðvuð

Eftir umræðu, gagnrýni og ört vaxandi vanda margra fyrirtækja, tók Seðlabanki loks við sér og lækkaði stýrivexti smávægilega í 2 þrepum; Úr 5,00% í 4,5%. Þetta, ásamt með hraðminnkandi gjaldeyristekjum, vegna yfirkeyrðs kostnaðar fyrir ferðamenn, leiddi loks til þess, að gengi krónunnar hóf frjálst og eðlilegt leiðréttingarferli.

Í fyrri viku lækkaði gengi krónunnar í nærri 120 í evru. Drógu nú sumir andann léttar og vonuðust eftir raunhæfu og „réttu gengi“, sem virðist liggja við 130 krónur. En hvað gerist þá!? Seðlabankinn veður inn á markaðinn og kaupir krónur í stórum stíl til að styrkja krónuna aftur. Með handafli. Hrökk hún þá upp í um 115. Gekk Seðlabanki með þessu óðagoti fram gegn áhrifum nýgerðra vaxtalækkana sjálfs sín!

Eftir greiningu helztu hliða þessa gengismáls, virðist eðlilegt gengissvið krónunnar 125-135 í Evru. Þetta ætti ekki að hækka vöruverð, því mér sýnist verzlunin ekki hafa þorað eða treyst sér neðar, og útflutnings­atvinnuvegirnir ættu að ná viðunandi afkomu.

Enginn raungrundvöllur fyrir sterkri krónu

Framganga Seðlabanka og ríkisstjórnar í vaxta-, gengis- og efnahagsmálum hefur verið vanhugsuð, fumkennd og lítt traustvekjandi. Helztu atvinnuvegir landsins eru reknir með tapi. Enginn gjaldmiðill hefur meiri styrk til lengdar en atvinnuvegirnir á bak við hann. Gæti trúin á krónuna snúizt í vantrú og hræðslu. Kæmi þá meira en eðlileg gengisleiðrétting.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×