Sjö mörk í síðustu fimm leikjum hjá Matthíasi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. júní 2017 18:22 Matthías er óstöðvandi þessa dagana. vísir/getty
Matthías Vilhjálmsson skoraði og lagði upp mark í 3-1 sigri Rosenborg á Strömsgodset í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Matthías hefur verið sjóðheitur að undanförnu og skorað sjö mörk í síðustu fimm leikjum í deild og bikar.7th goal in 5 games in the league & cup for @RBKfotball from @MattiVilla#TeamTotalFootball https://t.co/EH6onjPTM8— Total Football (@totalfl) June 4, 2017 Matthías hefur alls skorað þrjú mörk og gefið tvær stoðsendingar í norsku deildinni á tímabilinu. Rosenborg situr á toppi deildarinnar með eins stigs forskot á Sarpsborg. Björn Bergmann Sigurðarson lék allan leikinn í framlínu Molde sem laut í lægra haldi fyrir Sarpsborg, 1-0, á útivelli. Óttar Magnús Karlsson sat allan tímann á bekknum hjá Molde sem er í 7. sæti deildarinnar. Adam Örn Arnarson, Daníel Leó Grétarsson og Aron Elís Þrándarson voru allir í byrjunarliði Aalesund sem tapaði 0-1 fyrir Haugesund á heimavelli. Aalesund er í 5. sæti deildarinnar. Kristinn Jónsson var í byrjunarliði Sogndal sem vann dramatískan 3-2 sigur á Sandefjord. Sigurmark Sogndal kom þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Ingvar Jónsson stóð í marki Sandefjord sem er í 12. sæti deildarinnar. Sogndal er í því níunda.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Sjá meira