Manndráp í Mosfellsdal: Jón Trausti í gæsluvarðhaldi til 23. júní Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 8. júní 2017 17:29 Fimm karlmenn og ein kona voru leidd fyrir dómara í dag vegna gruns um aðild að árásinni. Vísir/Eyþór
Jón Trausti Lúthersson hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. júní vegna gruns um aðild að hrottalegri líkamsárás í Mosfellsdal í gærkvöldi sem leiddi til dauða manns á fertugsaldri. Fimm karlmenn og ein kona voru leidd fyrir dómara í dag vegna gruns um aðild að árásinni. Meðal þeirra er Jón Trausti og bræðurnir Marcin Wieslaw Nabakowski og Rafal Marek Nabakowsi sem hlutu dóm fyrir skotárás í Breiðholtinu í febrúar. Ekki er enn ljóst hvort aðrir en Jón Trausti hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald og þá hversu langt en það ætti að skýrast á næstunni. Jón Trausti var endurtekið í kastljósi fjölmiðlanna síðasta áratug þegar mótorhjólagengi voru að ryðja sér til rúms á Íslandi. Hann hefur hlotið dóma fyrir líkamsárás en hann réðst meðal annars inn á ritstjórnarskrifstofur DV haustið 2004 og beitti Reyni Traustason, þáverandi ritstjóra blaðsins, ofbeldi. Hlaut hann tveggja mánaða dóm fyrir. Jón Trausti stofnaði mótorhjólaklúbbinn Fáfni sem síðar varð hluti af Vítisenglum. Hann hætti um svipað leyti, stofnaði Black Pistons MC sem var stuðningsklúbbur Outlaws. Lítið hefur spurst til Jóns Trausta undanfarin ár.
Stórfelld líkamsárás í Mosfellsdal Mest lesið Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Benedikt Sveinsson er látinn Innlent Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Innlent Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Brynjar segir af sér Innlent Fleiri fréttir Þyrlan aðstoðar lögreglu við Reynisfjall Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Sjá meira